Búnaðarrit - 01.01.1939, Síða 114
110
B Ú N A Ð A R R 1 T
Tegundir
21. Forus frá Forus ............
22. Pari frá Forus .............
2.'t. Parmassia frá Finnlandi .
24. Pen Lomond frá Finnlandi
25. Rosofolia frá Finnlandi . . .
HelUo kg pct smælki
af ha af uppsk.
213,9 13,0
58,3 28,6
97,2 9,5
222,2 8,3
152,8 6,1
Er hér um mörg álitleg kartöfluafbrigði að ræða.
Verður eigi farið nákvæmlega út í að lýsa hverju
þeirra, en ég vil mæla sérstaklega með þessum af-
brigðum. Af snemmsprottnum kartöflum, sem gefa
góða uppskeru, er Böhms, Early Rosin, Dukker og
Duke of York álitlegastar. Af meðal snemmsprottnum
finnst mér álitlegust, þó þau séu að mörgu ólík, Gull-
auga, sem er sérstaklega þurefnisrík og bragðgóð
kartafla. Bragðgóð, sem er gömul hér í stöðinni, feng-
in í matarkartöflum frá Mjólkurfélagi Reykjavíkur.
St. Skoti og Kerrs pink.
Af seinsprottnum kartöflum finnst mér Ackersegen
og Deodara álitlegastar.
Engra sjúkdóma varð vart á afbrigðunum nema að
nokkuð bar á tíglaveiki á Böhms og Duke of York.
Önnur starfsemi.
Bæði árin hafa störf mín verið lík því sein verið
hefir áður, frærannsóknir á aðsendu fræi og fræi
stöðvarinnar. Bréfaskriftir hafa aukizt og relcstur
starfseminnar færzt í aulcana. Fyrirlestra hefi ég
haldið í útvarp og eins annarstaðar, um kornrækt og
túnrækt.
Sömuleiðis hafa verið haldin hér námslceið í jarð-
rækt hæði vorin.
Vorið 19Í57 tóku þessir menn þátt í námskeiði í
jarðrækt:
Magnús G.uðmundsson,
Ingólfur Lárusson og
Magnús Hrólfsson, allir af Austurlandi,