Búnaðarrit - 01.01.1939, Page 157
BÚNAÐARRIT
153.
sínum, eða ekkjum þeirra, föst og ákveðin eftirlaun,
þá mun það heldur ekki verða gert eftirleiðis, frekar
en búið er þegar að samþykkja.
Þess vegna vill Búnaðarþingið enn á ný benda föst-
um starfsmönnum Búnaðarfélags íslands á það, þeim
sem hafa ekki enn tryggt sér lífeyri í lífeyrissjóði
embættismanna og ekkna þeirra, eftir lögum frá 1921
og samkvæmt heimild laga um lífeyri fastra starfs-
nianna Búnaðarfélags íslands frá 1. júlí 1928, að láta
nú ekki dragast lengur að koma þessu í lag.
Jafnframt skorar Búnaðarþingið á stjórn Búnaðar-
félags íslands að hlutast til um, að mál þetta komist í
fastar skorður.“
Á þingskj. 242:
„Búnaðarþingið felur stjórn Búnaðarfélags íslands
að ráðstafa störfum hrossaræktarráðunauts þannig, að
ekki verði tekinn fastur starfsmaður til að inna þau af
hendi l'yrst um sinn. Jafnframt leitist stjórnin fyrir um
hæfan mann, er hafi eðlisvit á hestum, til þess að taka
aukanám í þessari grein, með það fyrir augum að hann
takist þessi störf á hendur að loknu námi.
Nú hefir stjórn Búnaðarfélags íslands tryggt sér
hæfan mann lil þessa starfs, og skal hún þá leita sam-
vinnu við Samband ísl. samvinnufélaga um að hann
hafi á hendi fyrir Sainhandið útvegun hrossamarkaða
erlendis, og annist um kaup, útflutning og afhendingu
hrossanna á sölustaðnum, enda greiði S. I. S. kostnað
af því.“
„Búnaðarþingið samþykkir að Búnaðarfélag íslands
gerist styrktarfélagi í íslandsdeild félagsins Nordisk
Jordbrugsforskeres Forening, og heimilar stjórninni
að greiða 200 kr. árstiilag til félagsins, er greiðist af
óvissum gjöldum í fjárhagsáætlun félagsins fyrir árin
1939 og 1940.“