Búnaðarrit - 01.01.1939, Page 160
156
BÚNAÐARRIT
Mál nr. 3.
Reilcningar búnaðarsambandanna árin Í937 og
1938, og f járhagsáætlanir 1939 og 1940.
Afgreiðsla þessara mála, þ. e. styrkveitingar til sam-
bandanna, sést í fjárhagsáætlun Búnaðarfélagsins.
Mál nr. 4.
Erindi Halldórs Pálssonar og Páls Zóplióníassonar
um breytingar á lögum um innflutning sauðfjár til
sláturfjárbóta.
Eftirfarandi tillögur voru samþykktar:
J. Búnaðarþing skorar á Alþingi, að breyta lögum
um lieimild fyrir ríkisstjórnina til að flytja inn
sauðfé til sláturfjárbóta, frá 8. sept. 1931, þannig,
að heimila Búnaðarfélagi íslands að láta fram-
kvæma tilraunir með framhaldsræktun Border
Leicester og karakúlfjársins, ineð kynblöndun við
íslenzkt fé, og telur Búnaðarþing réttast að setja
kafla um ræktun erlendra fjárkynja inn í bú-
fjárræktarlögin.
2. Búnaðarþing skorar á Alþingi, að setja ný lög um
innflutning búfjár, þar sem sett verði ákvæði um
einangrun hins innflutta búfjár, svo öruggt sé að
sjúkdómar berist ekki til landsins með því. Skal
einangra þann búpening sem flytja á til landsins,
um skeið í því landi sem hann er kevptur frá, því
næst sk'al hann fluttur í eyju eða eyjar hér við
land, og skal einangra hann þar, saman við gripi
sömu tegundar, minnst 2—3 ár, og gera þar þær
tilraunir með þennan fénað, sem þurfa þykir.
Þegar um hófdýr eða klaufdýr er að ræða, skal
ekki heimilt að flytja þau úr einangruninni til
lands, heldur aðeins sæði úr karldýrum til í'rjóvg-
unar kvendýra í landi.
Verði ekki sett ný lög um innflutning búfjár,.
skorar Búnaðarþing á Aljiingi að breyta lögum