Búnaðarrit - 01.01.1939, Page 172
168
BÚNAÐARRIT
rýmingar á hinni svo kölluðu „garnaveiki“, og væntir
þess að ríkisstjórnin láti vinna að fullri útrýmingu
hennar.
í sambandi við það leggur Búnaðarþingið til:
1. Við niðurskurð á fénu nú í vetur, að lokinni rann-
sókn, séu greiddar í beinan styrk 15 kr. pr. kind.
2. í uppbætur, sem komi i stað hinnar óbeinu hjálp-
ar á mæðiveikissvæðinu, kr. 10.00 pr. kind eitt
skifti fyrir öll, og greiðist eingöngu til endurnýj-
unar stofninum, þó ekki yfir 90% af upphaflegum
fjárstofni. Þessar uppbætur nái aðeins til þeirra
manna sem missa af l'járstofni sínum yfir 10%
af völdurn veiki þessarar.
3. Komi til algerðs niðurskurðar á einstökum bæj-
um nú í vetur eða næsta haust, á ósjúku fé, sem
útrýmingarráðstöfun, þá má líka gera ráð fyrir
að slíkar jarðir verði að standa sauðlausar í heilt
ár að minnsta kosti.
í slíkum tilfellum telur nefndin að skaðabætur
verði að miðast við vorverð og greiðist aðeins til
kaupa á nýjum stofni.
4. Meðan viðkomandi menn hafa ekki komið upp bú-
stofni sínum njóti þeir sömu hlunninda með vaxta-
tillög og jarðarafgjöld árlangt eða lengur, eins og
bændur á mæðiveikissvæðinu, samanber 19. gr. i
lögum um varnir gegn úthreiðslu mæðiveikinnar.
Kýlapestin:
Búnaðarþing telur sjálfsagt, að nú þegar verði fram-
kvæmd rannsókn á kýlapest þeirri, sem orðið hefir
vart við í sauðfé í Þingeyjarsýslu, og leggur áherzlu
á, að allt sé gert sein unnt er til að útrýma henni.
Bætur fyrir tjón, sem einstakir menn líða vegna
útrýmingarinnar, skal greiða á sama hátt og gert verð,-
ur í sambandi við útrýmingu garnaveikinnar.