Búnaðarrit - 01.01.1939, Page 200
196
BÚNAÐARRIT
um skylt að hafa lokið því starfi innan 30 daga, frá
því skýrslurnar bárust í hans hendur.
Allt þetta framlag rennur í félagssjóð fyrstu 10 árin,
sem lelagið starfar, en ef fclagið stendur þá á traust-
um f járhagslegum grundvelli, má með samþykki meiri
hluta félagsmanna og sauðfjárræktarráðunauts B. ísl.
greiða allt að % af hinu árlega ríkisframlagi til þeirra
manna, sem eiga þær kindur, sem verðlaunin fá.
Stjórn félagsins skal árlega fá ákveðna þóknun fyrir
starf sitt í þágu félagsins. Skal sú upphæð álcveðin í
samþykktum hvers einstaks félags, og miðast að miklu
leyti við, hve inargt fé er í félaginu á hverjum tíma,
og hve félagssvæðið er stórl.
8. gr.
Þyki meiri hluta félagsmanna og stjórn félagsins
æskilegt að félagið eigi sjálft kynbótahrúta til sameig-
inlegra nota fyrir félagsmenn, þá skal stjórn félagsins
heimilt að kaupa slíka hrúta, ef fé er fyrir hendi, af
einstökum félagsmönnum (hrúturinn sé þó af félags-
fénu), eða utanfélagshrút, ef slíkt væri talið nauðsyn-
legt af sauðfjárræktarráðunaut B. Isl. Félagsstjórn
ráðstafi svo þessum hrútum, ákveði árlega afnota-
gjald þeirra (hrútstolla) og hverjum félagsmanna þeir
skuli lánaðir.
9. gr.
Vilji einstakir félagsinenn lána hrút, ákveður stjórn
félagsins afnotagjaldið og sér um greiðslu þess til
hrútseiganda. Heimilt skal henni að greiða allt að
helming af hrútstollinum úr félagssjóði, ef fé er fyrir
hendi, og aðalfundur félagsins samþykkir að svo skuli
gert.
10. gr.
Skylt er hverjum félagsmanni að láta menn innan
félagsins sitja fyrir kaupum á þeim kindum, sem þeir