Búnaðarrit - 01.01.1939, Page 208
204
BÚNAÐARRIT
þegar í stað möguleikar fyrir því að reisa stöð til þur-
mjólkurvinnslu, og ef þær athuganir leiddu í ljós að
þurmjólkurvinnsla mundi verða hagkvæm, þá beitti
það áhrifum sinum til þess að slík mjólkurvinnslu-
stöð A'erði reist.
Telur Búnaðarþingið að í því sambandi heri sér-
staklega að taka til athugunar hvort ekki sé hagkvæmt
að reisa hana í Húnavatnssýslu ineð tillili til nauð-
synja í aukinni mjólkurfr-amleiðslu, vegna hinna miklu
örðugleika þar, í sambandi við mæðiveikina, og óhægr-
ar aðstöðu til reksturs á venjulegu mjólkurbúi.
Leiði athugun i ljós að tiltækilegt sé, vegna mjólkur-
magns, að setja upp þurmjólkurvinnslustöð á inæði-
veikissvæðinu, beinir Búnaðarþingið þeirri áskorun
til ríkisvaldsins, að veita úr ríkissjóði allt að helmingi
stofnkostnaðar hennar.
Mál nr. 09.
Þingsályktunartillaga um þjóðminjasafnslnjggingu.
Eftirfarandi tillaga var samþykkt:
Búnaðarþingið vekur athygli ríkisstjórnarinnar og
Alþingis á því, að núverandi húsnæði þjóðminjasafns-
ins er með öllu ól'ullnægjandi, vegna þrengsla, svo að
safnið nýtur sín ekki, auk þess er það í stórhættu ef
eldsvoða ber að höndum.
I þessu safni eru varðveittir margir af merkilegustu
dýrgripum þjóðarinnar, sem henni væri óbætanlegt
tjón að missa, þar á meðal mjög inerkileg gögn um
heimilismenningu forfeðra vorra.
Auk hinna sögulegu verðmæta er safnið mjög mikils-
vert fyrir islenzka bændur, sem fyrirmynd þeirrar
heimilismenningar, er smám saman þarf að rísa upp
aftur í sveitum landsins.
Búnaðarþingið skorar jiví á ríkisstjórnina og Alþingi
að sjá þjóðminjasafninu fyrir hæfilegu lnisnæði liið
allra fyrsta, og vill i því sambandi benda á, að það