Búnaðarrit - 01.01.1939, Page 242
238
BÚNAÐARRIT
rírt. Er erfitt að gera sér Ijóst, hver er orsök þess, en
i'ljótt á litið verður helzt að telja það vera vegna of
einhliða fóðrunar a. m. k. á einhverjum tíma árs. Það
þarf að rannsaka fyrr en siðar fjörubeitina og reyna
að finna orsök þess, hve dilkar af sumum fjörubeitar-
svæðum eru rírir á haustin o. fl.
Austur-Skaftafellssýsla.
Tafla E sýnir hvaða hrútar hlutu I. verðlaun í
Auslur-Skaftafellssýslu.
Báðir I. verðl. hrútarnir voru ágætar kindur. Erfitt
var að vísu að dæma um, hvernig Akur myndi reynast.
Hann er keyptur úr fjarlægu héraði, þar sem land-
kostir eru góðir, og fluttur í landléttara hérað. Ennþá
hafði ekki á það reynt, því að hann var hafður í ágætri
eyju um sumarið fyrir sýninguna. Kom hann úr þeirri
eyju holdgóður og prúður með afbrigðum. En það
getur farið svo með hann eins og marga aðra góða
hrúta, sem fluttir eru úr landkostum þangað, sem
land er létt, að þeir reynast þar ekki vel, né það sem
út af þeim kemur.
í Austur-Skaftafellssýslu er fé fremur rírt. Virðist
einkum vanta á það mikil hold. Það er sá almanna-
rómur í A.-Skaftafellssýslu, að féð sé að taka fram-
förum og er slíkt gleðilegt, en því miður varð ég víða
um land var við h}ð gagnstæða, að bændum finnst
allt verra, sem þeir hafa nú við að lifa en í þá gömlu
og góðu daga, sem löngu eru liðnir.
Ég er sammála A.-Skaftfellingum um, að le þeirra
hafi batnað — orðið arðmeira en það var. Sést það
hezt, þegar athugað er það litla af þeirra gainla fé sem
enn er þar við liði. Féð hefir stækkað með kynblönd-
un við hið svokallaða Norðanfé ■—• Jökuldals- og
Möðrudalsfé. Þingeyskt l'é hefir gefizt þar illa.
Ég hygg að enn megi bæta féð á þessum slóðum að
mun, með því að velja úr það holdmesta, samfara