Búnaðarrit - 01.01.1939, Page 258
BÚNAÐARRIT
254
vegna mæðiveikinnar, og 1936 og 1937 stórfækkar
ánum, og kemur það fram á því að 1938 er lambaslátr-
unin lítil samanborið við fyrri ár. Meðalþunginn 1934
er lágur, og er útskýrður af mönnum á svæðinu með
því hve vorið var hart og ær þá tóku að sér, og því
að þá var ekki farið að gefa ormalyf almennt og því
öhreysti í fénu. Hin mikla þyngd dilkanna 1938 er
talin stafa af því hve rúmt var í högunum á meðan
gróðurinn var lítill (gróður kom snemma, en stóð svo^
í stað lengi og hefði þá vart hrokkið ef margt liel’ði
verið í högunum) hve fátt var af tvævetlulömbum að
tiltölu og því að jnargir fóðruðu ])á jneð óvenju mikl-
um mat, þar sem þeir héldu að vel fóðraðar eða aldar
ær, mundu síður fá mæðiveikina, og alveg' sérstak-
lega þorðu menn ekki að sleppa ánum eins snemma
(<g venjulega, þar sem þær margar hverjar voru aum-
ingjar til heilsu, og mun það hafa verið einhver mesta
hreytingin á fóðruninni frá því sem áður hafði verið
venja. 1938 er nýrinör í fyrsta sinn veginn með í
ca. % skrokkanna.
Ár Lambatala MeSalfall
1934 ................. 27974 12,83
1935 ................. 30879 13,22
1936 ................. 34802 13,32
1937 ................. 36253 13,10
1938 ................. 23796 15,21
3. Arnarstapi. Verzlunarsvæðið hefir breyzt og því
hefir slátrun flutzt tvö síðustu árin ;ið Hellusandi,
Ólafsvík og Stykkishólmi. Vegna þessa verður meðal-
])ungi dilkanna vart sambærilegur nema tvö síðustu
árin, því þau ár munu sömu hændur hafa slátrað á
Arnarstapa. 1938 sýnir meiri meðalþunga, og mun
hann að mestu stafa af árferði, en þó líka :ið einhvei ju
leyti af meiri síldarmjölsgjöf og því að þeim fjölgar
sem ekki sleppa á ógróna jöró og láta allt leggja af
fgrir burðinn.