Búnaðarrit - 01.01.1939, Side 259
BÚNAÐARRIT
255
Ar Lambatala Meðalfall
1934 ................... 1593 13,15
1935 ................... 2020 13,17
1936 ................... 1172 13,18
1937 .................... 766 12,92
1938 .................... 760 13,98
4. Hellusandur. Lambatalan er lægst fyrsta árið, og
stafar af miklum lambadauða um vorið, og mest síð-
asta árið sem stafar af slátrun manna sem ekki höfðu
slátrað þar áður. Dilkaþunginn er mestur 1936, og er
mér með öllu ókunnugt um orsakir, og hefir engin
reynt að skýra þær af þeim er mér hafa skrifað af
svæðinu. Hér er um fjörubeitarfé að ræða að miklu-
leyti, og gæti hugsast að gróður hefði komið þannig
um vorið .1936, að ær uin burð og fyrst eftir hann
hefðu haldið sig minna að sjónum, og meir til fjalls-
ins en árin eftir, en þetta er ágiskun mín.
Ár Lambatala Meðalfall
1934 .................... 353 12,58
1935 .................... 458 13,00
1936 .................... 488 13,43
1937 .................... 469 12,58
1938 .................... 512 12,60
5. Ólafsvík. Lægri lambatala fyrri árin útskýrist af
því sem áður er sagt. Meðaltalið þokast upp á við frá
ári til árs. Er það þakkað þvi tvennu að nú fjölgi þeim
óöum er fari betur með œrnar að vorinn, sérstaklega
sleppi ekki eins snemma og áður hafi verið gert, og
svo gefi fjöldinn nú síldarmjöl með beitinni, og það
liafi áhrif til hækkunar meðallamhavigtinni.
Ár Lambatala Meðalfall
1934 .................... 372 13,15
1935 .................... 364 13,52
1936 .................... 344 13,57
1937 .................... 502 13,82
1938 ................... 580 14,00