Búnaðarrit - 01.01.1939, Page 269
BUNAÐARRIT
2(55
margt svo og 1938 og gerir það minni slátrun að
haustinu. 1937 eru ær drepnar vegna mæðiveiki og
verða lömb því færri 1938. 1936 er nýrmör fyrst
veginn með skrokkunum og veldur það ca. % kg.
þungaaukningu síðari árin. Orsök þyngdaraukans er
talin að vera, rénandi ormaveiki vegna ormalyfs inn-
gjafar, og bætt meðferð, og þakka sumir er svara,
liana sildarmjölsgjöf, en aðrir bctri meðferð ú vorin.
Einn tekur svo djúpt í árinni að hann segir: „á þeim
bæjum sem vormeðferðin hefir ekki batnað, hefir
meðaltcdið ekkert hækkað jafnvcl þó þeir gcfi sildar-
mjöl að vetrinum og eyði meira fóðri í heild en áður
var,“ og ég hygg að hann hafi rétt fyrir sér, og svipað
muni mega segja víða annarsstaðar.
Ar Lambatala Meðalfall
1934 ................... 7895 14,49
1935 ................... 6539 14,94
1936 ................... 6853 15,79
1937 ................... 7774 15,89
1938 ................... 6804 16,86
25. Borðegri. Fækkun sláturlambanna 1938 stafar
af ærfæklcun 1937 vegna mæðiveikinnar. Vegna þess
að ekki vóru sett á lömb í nokkrum hluta slátursvæð-
isins 1936, af ótta við mæðiveikina þá eru tiltölulega
færri tvævellulömb 1938 en hin árin, og veldur það
hækkun á meðaltalinu. Nýrmör mun fyrst veginn í
skrokkunum 1936 og er líldegt að það hækki meðal-
lalið allt upp undir % kilogram samanborið við tvö
fyrstu árin. Annars er hækkaða meðaltalið talið stafa
af betri hregsti i fénu (ormalyf) og betri meðferð, sér-
staklega að vorinu.
Ár Lambatala Meðalfall
1934 ................... 7764 14,75
1935 ................... 7819 14,73
1936 ................... 7935 15,90
1937 ................... 7575 15,96
1938 ................... 5350 17,56