Búnaðarrit - 01.01.1939, Page 270
BÚNAÐARRIT
26(5
26. Hvammstangi. Aukning sláturlambatölunnar
1936 og 1937 stafar af drápi vegna mæðiveikinnar, og
fækkunin 1938 vegna fjárfækkunar á fullorðna fénu
af völdum hennar. Nýrmör er veginn með í meirihluta
af skrokkunum, og yeldur liklega um % kg. hækkun
á meðalfalli öll árin. Hin mikla hækkun 1938 staf-
ar fyrst og fremst af því tvennu, að engin tvævetlu-
lömb eru til á svæðinu, og verður meðaltalið því hærra,
og þvi að veturinn 1937—38 fara flestir mcð féð eins
og sjúklinga til að reijna mcð því að láta það lifa,
fóðurbætir er gefinn meir en venjulega og því gefið
lengur að vorinu, og þetta allt samhliða liinu góða
vori gerði góðu útkomuna — mikla þungann —. Hækk •
un á þunga meðaldilksins 1935 frá 1934 er aftur
að mestu þökkuð áhrifum ormalijfsins sem fyrst er
almennt gefið í sýslunni 1935.
Ár Lambatala Meðalfall
1934 ................ 17183 13,54
1935 ................ 17060 14,28
1936 ................ 18434 14,53
1937 ................ 20662 14,57
1938 ................ 10971 16,66
27. Blönduós. Fækkun sláturlambatölunnar 1938
stafar af fækkun fullorðna l'járins 1937 vegna mæði-
veikinnar, en að öðru leyti mun hún stafa af mis-
miklu lambalífi, og meiri unglambadauða að vorinu
sum árin.
Ár Lambatala Meðalfall
1934 ................ 23318 12,14
1935 ................ 21540 12,77
1936 ................ 22437 13,47
1937 ................ 24858 13,80
1938 ................ 18960 14,83
Meðalþunginn befir aukizt misjafnt i hreppum
sýslunnar eins og meðfylgjandi tafla sýnir: