Dvöl - 01.07.1937, Blaðsíða 56
254
mannsins til eins dags: Frá niorgni
til dagmála bernska, frá dagmálum
til hádegis æska, frá hádegi til nóns
elli, frá nóni til miðaftans örvasa,
þaðan af nótt og náttúrlegur dauði“.
EÐLI OG OTLIT.
„Svartur skinnslitur og blandinn með
litlum bláma, sýnir hrygga menn og
í lunderni þunga. En þeir, er með
björtu blóði skína og blandið með
litlum roða, eru blíðir í viðurmæli
og léttir. Rauðlitaðir menn með blönd-
uðum dökkum lit, eru djarfir og til
reiði skjótir. Bleikur litur af kaldri
náttúru, sýnir lata menn og svefnuga.
Blauthærðir menn og þunnhærðir
sýna skjótt hugvit. þykkhærðir menn
singjarnir og óhræddir. Það hár, er
þröngir mjög saman og hrokknar
nokkuð yfir enninu, sýnir grimman liug,
og því samþykkir hárfar á skógar-
bjarnarhöfði. Gulir lokkar þykkir og
nokkuð ljósir, sýna mann ónæman.
Dökkjarpir lokkar, ef þeir eru mátu-
lega þunnir, sýda góðsiðuga mcnn og
hægt skaplyndi.
Höfuð mjög mikið sýnir heimskan
mann, en hnöttótt höfuð og skammt
óvitran og óminnugan. Lítið höfuð og
fyrir ofan svo sem slétt, sýnir laus-
ungarmark og óvenju. Aflangt höfuð og
vaxið nokkuð svo sem hamar, segir
mann vera forsjálan og athugunarsam-
an. Enni það, er mjög er mjótt, segir
mann vera ónæman og gráðugan. En
það, er mjög er langt, segir litla
skynsemdargrein. Litið enni og nið-
urlútt sýnir óframan hug og lýtalaus-
an. Ferhyrnt enni með mátulegan
D V ö L
mikilleik, sýnir mann mikilhugaðan með
mikilli vizku“.
„Ef brýr eru þar til bjúgar, sem þær
koma saman við nefið, merkja glöggan
mann og stundunarmikinjn í öllum sín-
um gerðum, en ef þar verður nokkuð
mjótt meðal, það sýnir hryggan mann
og óvitran. Ef brúnahár eru mjög
löng og' mörg, það merkir grimman
mann og mikilhugaðan. Ef augu eru
óstaðföst, svo að þau renna stundum
skjótt, en stundum séu þau kyrr,
merkja illa hluti volkast í huganum og
vera eigi fram komna. Gul augu með
skínandi birtu merkja djarfan mann
og til illgerða vakran. Mikil augu,
skjálfandi og svört, merkja drykkju-
mann og kvennamann. Augu mjög opin
merkja heimsku og óframa, en þau,
sem mjög eru lukt, merkja hrærilegan
hug og í öllum gjörðum sínum óstað-
fastan. Eyru þau, sem hátt standa og
eru mjög mikil, merkja athugaleysi,
heimsku og óvissu. En mjög lítil cyru
luifa illgjörða mark“.
TÉKKNESKT.
Tékkó-Slóvakía er eitt þeirra ríkja,
sem urðu til í ófriðarlokin. Tékkarnir
höfðu, eins og íslendingar, háð langa
og harða baráttu fyrir frelsi sínu —
og þeir áttu sinn ,,Jón Sigurðsson".
„Frelsari Tékko-Slóvakíu“, Thomas Ma-
saryk, er nýlega látinn, háaldraður.
Líkfylgd hans var 3 km. á lengd. Ma-
saryks hefir verið minnzt all-rækilega
í íslenzkum blöðum.
Tékkar eru ein af öndvegismenn-
ingarþjóðum heimsins og standa frarn-