Dvöl - 01.10.1938, Síða 20

Dvöl - 01.10.1938, Síða 20
25S D V ö L eru flestir hlutir lausir og fastir sömu fordæmingu seldir. Enda er það svo, að lagaboðin ein munu seint geta umskapað hugsunarhátt heillar þjóðar. En einhver kann að segja, að ræktarsemi eða óræktar við sögulegar minjar komi lítið við tilfinningum manna gagnvart nátt- úrunni. En því er einmitt svo hátt- að, að sami tvískinnungurinn, sem birtist í viðhorfi almennings gagn- vart minjum þjóðarinnar, birtist einnig í viðhorfinu gegn náttúr- unni. Þeir hinir sömu, sem hæst láta umi fegurð náttúrunnar á ein- hverjum stað eru oft hirðuminnst- ir um vé hennar. Yfirleitt verður þess alltof sjaldan vart að vér ís- lendingar viljum fórna nokkru verulegu til að viðhalda fegurð eða sérkennilegri náttúru einstakra staða. Vér viljum flestir aðeins njóta þeirra gæða, sem hin gjöf- ula móðir vor náttúran lætur oss í té en ekkert gjalda henni ámóti. Hverjum þeim, sem efast kynni um sannleikl þess, sem nú er sagt, vildi ég benda á að skóða ein- hvern vinsælan skemmtistað að kveldi dags þegar margt hefurver- ið þar gesta. Skógarrjóður, gras- bollar, hraungjár eða hvað, sem um er að ræða á umræddum stað, líkist ekki lengur sjálfu sér, heldur illa hirtu vörugeymslusvæði, eða ruslasafni borgar eða bæjar. Þar ægir saman allskonar umbúðum, flöskum bnotnum og heiluin, nest- isleifum og öðru því, sem hirðu- lausir ferðamenn geta eftir siglát- ið. Samt efast ég ekki um að flest- um þeim, er þessa staði heim- sækja, þyki í raun og veru vænt um þá, og vilji ekki spilla þeim, en hugsunarleysið er aðeins svona ríkt. Ég hefi upp á öræfum komið í tjaldstaði, þar sem ægt hefur saman niðursuðudósum, brotnum kössum, bréfarusli og skemmdum matarleifum, sem ferðalangar hafa ekki hirt um að ganga sómasam- lega frá, um leið og þeir yfirgáfu tjaldstaðinn. Það ætti þó að vera öllum mönnum ljóst, að slík um- gengni er skortur á siðmenningu. Yfirleitt ættu menn að líta á tjald- staði eins og gistiherbergi eða í- búð. Fæstum mundi þykja sæm- andi að skilja eftir ruslhauga í herbergi á vönduðu gistihúsi, enda mundi slíkt ekki látið óátalið. Mönnum er það ljóst að slíkt spill- ir prúðum híbýlum, en hvar er það gistihús, sem að fegurð jafn- ast við góðan tjaldstað í faðmi ör- æfa íslands. Orðin friðiun og verndun láta alltaf hálfilla í eyrum íslendinga, og kunnara er það en frá þurfi að segja, hvernig ýms friðunarlög eru haldin. Það er oft engu líkara en friðun einhvers hlutar veki óstöðv- andi fýsn, til þess að vega þar á veittar tryggðir, og þyrma sízt allra þeim hlutum, sem lögvernd- aðir eru. Svo rík er einstaklings- hyggjan og sú kennd að telja sjálf- um sér allt leyfilegt. En einmitt
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.