Dvöl - 01.10.1938, Page 68

Dvöl - 01.10.1938, Page 68
306 D V ö L hann hafði lifað með í meira en ár, og verið hafði hans eini félagi* Jafnvel í fangelsinu hafði fuglinn húkt á öxl gamla fangans. Pað hafði kostað hann mikla erfiðleika að fá leyfi til þess að hafa liann með sér til New Cale- donia. Og þegar það var fengið, hafði hann orðið að búa til búr handa honum til þess að vera í meðan þeir fóru yfir hafið. Búrið hafði1 hann smíðað úr tré og gömlum! vírspottum, og skreytt það með litlum grænum myndum, 1il þess' að það liti betur út. Ég man enn nákvæmlega hvað Yves sagði um þetta: „Vesalings fuglinn! Þótt hann fengi ekki annað að borða, en mylsmui af gráleita brauðinu, sem föngun- um var skammtað, þá virlist hon-i um líða vel. Að minnsta kbsti hoppaði hann um búrið eins og aðrir fuglar/' Skömmu seinna komu þeir að milliferðaskipinu og fangarnir voru búnir undir hina löngu sjó- ferð. Yves hafði nú gleymt gamla manninum, en af tilviljun stað- næmdist hann hjá honum aftur. „Hérna, takið þér það," sagði gamli sakamaðurinn með einkenni- Iega breyttri röddu, og rétti búrið að Yves. „Ég ætla að gefa þér það. Ef til vill geturðu notað það, ef til vill getur það veitt þér á- nægju“. „Nei, nei,“ svaraði Yves. „Ég get ekki annazt hann. Þú skalt hafa hann með þér. Hann getur verið þér góður félagi, þarna fyr- ir handan“. „Ó, en hann er ekki lengur inni!“ hálfkalljaði gamli maðurinn. Þú veizt það ekki? Hefurðu ekki heyrt það? Hann er þar ekki lengur?“ Tvö tár, — tár vorleysis og ósegjanlegs saknaðar glitruðu á kinnum hans. Skipið hafði hallazt, og við það opnuðust dyrnar á búrinu. Fugl- inn, sem var hræddur við allt þetta umstang, hafði hoppað út, en af því hann vantaði ann,an vænginn, gat hann ekki flogið pg féll í sjóinn. Það var hryggðar- sjón að sjá litla aumingjann berj- ast um og heyja sitt dauðastríð, um leið og hann barst burt með straumnum. Og gamli maðurinn horfði á þetta, án þess að vera fær um að bjarga honum, eða veita honum nokkra hjálp. Fyrst varð honum það á, að kalla á hjáljp, og sneri sér að Yv- es og grátbændi hann-----------. En svo duttu fanganum í hug sínar ömurlegu ástæður og hann þagnaði. Gamall sakamiaður! Hver mundi vilja hlusta á bænir slíks úrhraks? Gat honum dottið' í hug, að skipið yrði stöðvað tij þess að bjarga fuglinum hans —, af- brotamannsins? Það var vonlaust að hugsa um það. Svo stóð hann þarna í sömu sporum án þess að mæla orð, og horfði á litla gráa líkamann, sem

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.