Dvöl - 01.10.1938, Qupperneq 77
D V Ö L
315
íslands úti um hinn menntaða heim. En
verði annað eins snilldarhragð á mörgu,
sem nútíðarkynslóðin gerir eins og á
þessari Islandslýsingu Pálma Hannesson-
ar munu íbúar þessa einkennilega, en
afskekkta lands, vekja á ný athygli um-
heimsins á, að hér á sögueyjunni búi enn
þá þjóð, sem er í fremstu röð um mennt-
un og orðsins list.
V. G.
Jakobína Johnson: Kertaljós.
Urvalsljóð. Isafoldarprent-
smiðja h.f.
Urvalsljóð eftir Jakobínu Johnson er
cin af nýútkomnu bókunum. Þetta eru 40
kvæði, öll fremur stutt, ekki stórbrotin,
en lagleg og þýð. Það andar göfgi og
Ijúfum blæ frá ljóðum þet-sarar tryggu
og góðu dóttur Islands, sem elur aldur
sinn í stórborg vestur á Kyrrahafsströnd
og slær þar hörpuna sína í hrlíningu yfir
,,gamla landinu" í Norðurhöfum, því að:
„hún er eflaust arfur
einhvers liðins tíma,
— langt úr fortíð flutt“.
Og harpan verður:
„næm ef norrænt andar
— njóta dýpstu sælu
hugans helgust vé“.
Ljóðmæli Jakobínu eru prentuð í ísa-
foldarprentsmiðju. Þau eru í laglegu
skinnbandi., gyllt í sniðum og mjög snot-
ur nð útliti hið ytra og innra. Yerða
vafalaust vinsæl eins og höfundurinn hjá
þeim, er kynnast. Og munu þá margir
vilja taka undir með unga skáldinu (J.
Þ.), sem kveður, í nýútkominni ljóðabók,
til frú Jakobínu. um ljóðin hennar:
„Þau eru sýnir sólarátta,
svanakvak og Ijúflingsmál,
blíður draumur bjartra nátta,
berglind tær frá landsins sál.
I þeim finn ég alda og þjóða
andnrdrátt og hjartaslög,
frækið kaf til faldra sjóða,
flogið yfir hæstu drög.“
V. G.
Unqmennafélög Islands 1907
—1937. Minningarit. Prent-
smiðjan Edda h.f. 1938.
Seint á þessu ári kom út 30 ára minn-
ingarit ungmennafélaganna. Ritstjóri
þess er Geir Jónasson magister. Hinn góð-
kunni og þrautseigi fyrrverandi sam-
bandsstjóri ungmennafélaganna, Aðal-
steinn Sigmundsson kennari, ritar formál-
ann og mun eiga stærsta þáttinn í
því, að ritið kom út, þótt hans sé óþarf-
lega lítið getið. Minningaritið er stór bók,
um hálft fimmta hundrað blaðsíður í
stóru broti. I hana ritar fjöldi manna. —
Fyrsti kaflinn, sem heitir Minningar, er
ritaður af þrjátíu og fimm mönnum víðs-
vegar á landinu. Þetta eru allt „gamliri'
ungmennafélagar og fylgja myndir af
þeim öllum. Plestir eru þeir úr forvígis-
mannahóp ungmennafélaganna og margir
þeirra nú þjóðkunnir menn. Einnig er
f jöldi annara manna, sem skrifa frá ung-
mennafélögum sínum og eru það þá eink-
um forvígismenn þeirra félaga. Margar
góðar myndir prýða ritið, en hefðu þó
þurft að vera fleiri. í bókinni er starfs-
saga ungmeimafélaganna, söguágrip
flestra einstakra félaga, sem hafa verið
í U. M. F. Islands, um ungmennafélögin
'og þióðfélagsþróunina o. s. frv.
Það er ekki rúm til þess að ritdæma
þessa bók.Það em vafalaust skiptar skoð-
anir um val á frásögnum og um val á
sumlum þeim, er rita í hana eða þó má-
ske öllu fremur, að menn sakna margra
ágætra ungmennafélaga, sem lítið eða
ekkert heyrist þama frá. Og margir munu
sakna þess, að ekkert er getið þarna
ýmsra merkra ungmennafélaga á landinu,
sem hafa mikið starfað á svipuðum
gmndvelli og látið margt gott af sér leiða
eins og t. d. þingeysku félögin o. fl., en
þau hafa ekki verið í U. M. F. f. og þess
verða þau að gjalda.