Dvöl - 01.10.1938, Qupperneq 81
D V Ö L
319
Það hefir nú gengið eitthvað hœgt að
vekja hana til lífsins, en nú hafa „Vöku-
menn“ byrjað að gefa út tímarit, sem
köllað er „Vaka“. En svo hét áður tíma-
rit þeirra Ásgeirs Ásgeirssonar, Kristjáns
Albertson o. fl. Fyrsta hefti af þessu riti
er nýkomið út. Er það 80 bls. fyrir utan
auglýsingar, í nokkru minna broti en
Dvöl. Prentun, pappír og frágangur yfir-
leitt er í góðu lagi. Ritstjórinn er Valdi-
mar Jóhannsson kennari við Samvinnu-
skólann, Eyfirðingur að ætt og uppruna.
Hann er einn úr hópi þeirra ungu efn-
ismanna, sem Dvöl á margt gott að
þakka og er hann lesendum hennar nokk-
uð kunnur. í þetta fyrsta hefti skrifa
ýmsir góðir menn. En varla er sjáanlegt,
að hér sé um nýjar stefnur að ræða. —
Flestar greinanna eru laglegar, almenn-
ar blaðagreinar. Rit þetta á aðallega að
fjalla um menningar- og þjóðfélagsmál.
Vonandi vimiur ,„Vaka“ að því að
fjölga þeim mönnum, sem má með réttu
skrifa með litlum staf vöhumrnn íslenzku
þjóðarinnar.
Aðrar bækur.
Fjölda margar fleiri bækur en hér
hefir verið getið hafa komið út að und-
anförnu. Sumar þeirra hafa ekki borizt
Dvöl ennþá. Einstaka verður máske get-
ið í næsta hefti. Meðal þeirra, sem eink-
um hafa vakið athygli er mjög löng
skáldsaga eftir Guðmund Hagaiín:
Sturla í Vogum. Skáldsaga eftir Halldór
Kiljan Laxness: Höll sumarlandsins.
Skáldsaga eftir Gunnar Gunnarsson:
Svartfugl. Skáldsaga eftir Alexander
Dumas: KameUufrúin. Tvœr sögur eftir
John Galsworthy. Veraldarsaga eftir H.
G. Wells. Einnig er nýkomið 2. bindi af
Héraðssögu BorgarfjarSar. Skáldsaga
hefir komið út eftir hinn unga og ötula
kvenrithöfund Þórunni Magnúsdóttur:
Líf an'aiara, sem margir telja hennar
beztu bók. Alllöng skáldsaga hefir komið
út eftir aðra unga stúlku, Rósu B. Blön-
dals: Lífið er leikur. Þá hafa komið út
tvær laglegar ljóðabækur eftir ung skáld,
Jón Þórðarson: Dndir heiðum himni og
Sig. B. Gröndal: Shriftir heiðingjans.
Mannvonzka er einskonar goðsögn,
sem góðir menn hafa fundið upp til
þess að geta skýrt annars óskiljanlegt
aðdráttarafl annarra manna.
Oscar Wilde.
Fegurðin er fyrsta gjöfin, sem lífið
gefur konunni, og það fyrsta, sem
það tekur frá henni.
Méré.
Sannur vinur er sá, sem veit allt
um mína hagi, en heldur tryggð við
mig engu að siður.
Tvær siðustu visurnar í seinasta heítij
hafa Dvöl verið sagðar ekki rétt feðr-,
aðar. En þó að Skagfirðingarnir má-
ske eigi ekki heiðurinn af ætterninu,
þá eiga vísurnar skilið að lifa á vörum
almennings.
DVÖL þakkar fyrir góð skipti við
flestalla kaupendur sína á liðna árinu.
1 næsta árgangi verður a. m. k. ekki
minna lesmál en í þessum. Verðið
sama, sex krónur.
Lesendur góðir! Otvegið nýja áskrif-
endur að næsta árgangi.