Dvöl - 01.04.1946, Side 2
Ttífjar bœkuh
Einkabréf ciiiræðislierraiina.
Bók þessi hefur að geyma hin heimssögulegu bréfaviðskipti Hitlers og
Mussolinis á styrjaldarárunum. Handrit bréfanna komust í hendur for-
stöðumanni alþjóðafréttastofunnar í Róm, og bjó hann bréfin til prent-
unar. Nú að undanförnu ha/a fáar bœkur vakið slíka athygli erlendis sem
þessi, enda leiðir hún margt óvœnt í Ijós.
t
Pólsk bylting.
Sænskur kvenrithöfundur, Marika Stiernstedt. lýsir í bók þessari á mjög
ljósan og aðgengilegan hátt þeirri þróun, sem nú á sér stað á meginlandi
Evrópu. Eftirmáli er eftir Kristmann Guðmundsson rithöfund.
Litli rauður.
Stutt skáldsaga eftir snillinginn John Steinbeck, eitt af hans allra fág-
uðustu og dásamlegustu verkum. Gleymið ekki litlu bókinni um Litla rauð.
—'• -.áSI
Tvær ljóðabækur.
Villiflug heitir nýútkomin ijóðabók eftir Þórodd, son Guömundar á Sandi.
Þóroddur er bókelsku fólki að góðu kunnur, og mun þó hróður hans vaxa
enn af þessari bók. — Frá liðnu vori heitir bók eftir ungan nýliða í víngarði
ljóðlistarinnar, Björn Daníelsson. Per hann vel af stað og lofar bók þessi
góðu um framtíð hans sem skálds. Bók Björns er aðeins gefin út í 300
tölusettum eintökum.
Erimlasafnið.
Komin eru út tvö ný hefti af Erindasafninu. Eru í öðru síöari hluti
hinna athyglisverðustu erinda Sigurbjörns Einarssonar, Indversk trúarbrögð,
en í hinu hinir bráðskemmtilegu ferðaþættir Sigurðar Einnrssonar, Austur
og vestur á fjörðum.
Barnabækur.
Hin gamaikunna og vinsæla barnabók Ólafs Jóh. Sigurðssonar, Við Álfta-
vatn, er komin út í nýrri útgáfu, rkreytt skemmtilegum teikningum.
Þessa bók verða öll börn að eignast. — Önnur úrvalsbók er Hvíti selurinn
eftir enska skáldjöfurinn Rudyard Kipling, í þýðingu dr. Helga Pjeturrs, ein
allra ákjósanlegasta saga til að glæða hugmyndaflug barna og unglinga. —
Þá má minna á, að enn eru til barnabækurnar Um sumarkvöld eftir Ólaf
Jóh. Sigurðsson, Hlustiö krakkar, söngljóð barna eftir Valdimar Hólm
Hallstað og Skógarœvintýri Kalla litla.
BÓKAÚTGÁFA Pálma H.Jónssonar Akureyri