Dvöl - 01.04.1946, Side 9

Dvöl - 01.04.1946, Side 9
DVÖL 87 ekki mjög kostnaðarsamt — þeir þekktu tæpast verðmæti gula málmsins. En svo var það vinur landstjórans og landstjórinn sjálf- ur — hann hleypti brúnum. Allt var hægt að kaupa einhverju verði, á því var enginn efi, en verðið gat stundum orðið nokkuð hátt, jafn- vel þeim sem auðugir voru. Enginn vissi betur en hann, að mútur voru nauðsynlegar. Jafnvel meðan aðeins var um að ræða lítilfjörlega drauma hans sjálfs, voru honum erfiðleikarnir auðsæir. En þessi konunglegu auð- œfi — þar mundi sjálfur konung- urinn vilja hafa hönd í bagga. í gær hefði hann glaður gefið helming auðæfanna til að komast heill á húfi burt með hinn helm- inginn. En nú hafði hann séð þau og þuklað á þeim. Hann fylltist gremju. Hvað vildu allir þessir ókunnugu menn vera að skipta sér af fjársjóðnum hans? Þeir höfðu hvorki séð hann né leitað hans. Nú sá hann þá alla sem einn raða sér á gryfjubarminn eins og hræfugla um æti — Indíánana, landsstjórnina — lögfræðingana og hirðmennina, konur með fjár- græðgi í augum, jafnvel biskupa og kardínála. Já jafnvel kirkjan sjálf, jafnvel sjálfur Guð heimtaði hluta af fjársjóðnum. Þeir komu nær, þeir teygðu fram hendurnar hægt °g hægt lengra og lengra eftir hans eigin fjársjóði. Þeir gáfu honum þýðingarlausa og auðvirði- lega hluti i skiptum — koss — að- alsnafn — marmaraaltari — en alltaf þvarr fjársjóðurinn. Að lokum grúfði sig gamall maður yf- ir þj áningarfullar endurminning- ar um konungleg auðæfi — og jafnvel þá þyrptust menn að hon- um græðgisfullar verur úr öllum áttum. Hann sveiflaði um sig handleggjunum til að reyna að losna við þessar hugsýnir. Hann varð að endurskoða áform sín gaumgæfilega. Hann flýtti sér að reikna út það minnsta, sem hann gæti komizt af með til að tryggja öryggi sitt. Hann sneiö ut- an af mútufénu meira og meira — og þó ógnaði honum enn heildar- upphæðin. Tíminn virtist hér mundi græða sárin. Þegar á allt var litið, var engin nauðsyn að vinda upp segl í bráð. Hann gæti etiö og drukkið og sofið og leikið sér að fjársjóði sínum — og einhvern tímann mundi koma hið rétta tækifæri til brott- ferðar. Stundirnar urðu að dögum og dagarnir að vikum. Kvöld nokkurt brá honum í brún, er hann var að athuga almanakið sitt og sá, að liðnir voru nær tveir mánuðir síð- an hann gróf upp fjársjóðinn. Það sýndist ótrúlegt, en samt var það satt. Jæja, Vasco Gomez, hugsaði hann einkennilega deyfðarlega,

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.