Dvöl - 01.04.1946, Síða 12

Dvöl - 01.04.1946, Síða 12
90 D VÖI horfði á og brosti. Gomez sá um síðir, hve ást hans var vonlaus og þá réð hann niðurlögum her- mannsins í fjallagili einu og flúði svo, áður en hann var gripinn. Þá byrjaði hans raunverulegi ævifer- ill. í draumum Gomez var samt enginn hermaður. Aðeins stúlkan og hann sjálfur, eins og hann hafði verið. En hún fyrirleit hann ekki lengur og þau brostu hvort til annars milli kossanna. Þessi draumur virtist nú mjög eðlilegur. Hann hallaði sér út yfir borðstokkinn og horfði letilega ofan í vatnið. Andlitsmynd hans speglaðist í vatnsskorpunni. í fyrstu kom honum þetta andlit ókunnuglega fyrir sjónir. Hans eigið andlit var andlit unglingsins í draumnum — ung- legt, grannleitt andlit, óráðið, en hvorki meitlað línum góðs né ills — andlit æskunnar. Þetta var skorpið andlit gamals manns. Hann fór höndum um líkama sinn varlega og undrandi. Um langt skeið hafði hann ekki gefið líkama sínum neinn gaum. En þessi fuglahræða var hann sjálfur. „Þú hefur komið um langan veg, Gomez,“ muldraði hann. Honum birtist ný sýn úr öðrum draumi. Hinn ágæti Vasco Gomez, konungur auðæfanna, einn á skrautbúinni banasæng. Á aðra hlið hvílunnar sat prestur, en hina lögfræðingur, en augu hins deyj- andi manns sáu hvorki róðukross né erfðaskrá. Þau störðu inn í myrkrið og reyndu að festa augun á einhverju ósýnilegu. Fyrir dyr- um úti varði þjónn þögulli mann- þyrpingu inngöngu, hópi erfingja. Úti í horni beið óþolinmóður mað- ur með svarta hanzka. Ef eitthvað kraftaverk — ein- hverjir ótrúlegir duttlungar Guðs — gæti flutt hann til strandar meginlandsins ásamt fjársjóðn- um Þótt svo færi, hafði hann þegar lifað lífinu, ef ekki í raun- veruleikanum, þá í draumum sín- um. Líkami hans var honum einskis virði lengur, ekki heldur fjársjóðurinn. Aðeins eitt var hon- um dýrmætt — mynd stúlkunnar í kránni — og þann draum gat ekki allt gull veraldarinnar keypt fram úr djúpum liðna tímans og gert að veruleika. Vasco Gomez spennti greipar, svo að hnúarnir hvítnuðu og bak- vöðvarnir þöndust út. Hann hafði alltaf verið hraustur, öruggur og gætinn bardagamaður. Nú varð hann enn að berjast, án miskunn- ar eða samvizkusemi eða við- kvæmni, eins og áöur fyrr. En í þetta skipti var andstæðingurinn ósýnilegur. Næsta morgun gekk hann enn um ströndina. Af og til leit hann út til hafsins. Sjórinn var sléttur og tær. En svo uppgötvaði hann,

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.