Dvöl - 01.04.1946, Page 21

Dvöl - 01.04.1946, Page 21
D VÖL væntingu minni sneri ég fjórða „takkanum“ í heilan hring. Steins- hljóð. Vonsvikin í versta skapi horfði ég út um opinn gluggann, á úfinn sjó og yglda rokbrún við sjónarrönd. En kemur þá ekki veðurspek- ingurinn glaðvakandi og þylur spádóma sína á þrem tungumál- um. Horfurnar voru ekki góðar, en þó taldi hann von um að rokið myndi réna. Þung á brún gretti Ég mig framan í kafaldsmugguna, sem grenjaði á gluggunum, en labbaði mig síðan upp á loft og skreið undir sæng. Ég hafði vart keyrt sængina yfir höfuð mitt, þegar Hún kom askvaðandi, sveiflaði sér upp í til fóta og heimtaði kaffi. Hjartagóð stúlka færði okk- ur kaffi, það hressti skapið. Við hjöluðum nú um stund og tókum gleði okkar. Á tólftu stundu birtist stúlkan á ný og tjáði okkur, að veöur færi ört batnandi. Við spruttum á fæt- ur í þvílíku hasti, að kaffikanna og kaffibollar hentust út í horn. Nú var tekið til aö ferðbúast. Ráðsettu fólki þótti ferð okkar hið mesta flan, en skynsamlegar fortölur máttu sín einskis gegn bjargföstum ásetningi okkar. Eftir að hafa etið miðdegisverð bundum við nestispoka á bak okk- ar, skíði á fætur og lögðum af stað. Ég, sem var óvön að ganga á ðð skíðum, hafði vart gengið lengd mína þegar Ég datt. Hún hló, en sagði, að fall væri fararheill. Þessa vizku hafði Hún lært af spökum manni norður á Ströndum. Leiðin lá nú á brattann. Hún var víkingur að dugnaði og stik- aði hverja brekku með öryggi hins æfða skíðamanns. En klaufinn, Ég, var ýmist að missa af mér skíðin, eða renna aftur á bak. Versta brekkan hét Kúfsbrekka, þóttist ég varla hafa komizt í slíka raun sem að hafa mig upp hana, en í stað þess að verða mér að liði, hló Hún einungis og skemmti sér yfir vandræðum mínum. Eftir mikið strit frá minni hálfu lauk loks síðustu brekkunni og stóðum við þá í Kjaransvíkur- skarði. Féllu þá öll vötn norður af til Kjaransvíkur. Þar snæddum við nesti okkar og horfðum him- inglaðar á batnandi veður. Upp af Kjaransvík er dalverpi með af- líðandi halla til sjávar. í Kjar- ansvík stóð eitt af fjórum búum Geirmundar helj arskinns, varð- veitti það Kjaran þræll og ber víkin nafn hans. Nú er þar engin byggð. „Hér skulum við renna okkur,“ sagði Hún og rann af stað á fleygi- ferð. Mér þótti öruggara að setj- ast á skíðin, og fór þannig fyrstu brekkuna. Hún beið mín skelli- hlæjandi við brekkulokin, slíkt og þvílíkt athæfi þótti henni ekki sæma. Ég gerði þá tilraun til að

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.