Dvöl - 01.04.1946, Page 46

Dvöl - 01.04.1946, Page 46
124 D VÖL búa þar eftir það, svo óhreinn var staðurinn. Við þennan árbakka léku sér börnin þeirra Snæfríðar og Björns. — Hún var stundum hrædd um, að þau féllu í strauminn, en það kom aldrei fyrir. Huldufólkið í berg- kirkjunni verndaði þau. Hér var það, sem Reynir undi sér bezt við langspilið. Hann var elzti sonurinn hennar. — Sölvi Helgason kom að honum, þar sem hann lék á hljóðfærið skammt frá fossinum, og hann ætlaði varla að trúa sínum eigin augum og eyrum. Flakkarinn kvaðst aldrei hafa séð jafn gáfuleg augu í nokkrum unglingi á íslandi. Unglingurinn lærði síðar á hljóð- færi í fjarlægri borg. Og þar dó hann. — Þar dó hann. — Hann hafði leikið sér sem barn við þenn- an foss, — notið listarinnar við þennan foss. Svo dó hann í mikl- um fjarska án þess að líta foss- inn sinn aftur. Gamla konan situr hokin. Hún kemur með visnum fingurgómun- um við mosa á steini. Þessi lág- vaxnasti gróður landsins er mýkri öllum öðrum. Hversu oft hefur hann ekki verið svæfill útilegu- mannsins? Snæfríður lokar augunum og skynjar ekkert betur en fossnið- inn og heitan blæ júlídagsins. Hvað líður tímanum? Hver spyr þess? Sólin skín yfir landið. Fólkið hefur mælt sér mót, ræðir dags- ins málefni og skemmtir sér. Elzta kona sveitarinnar, sú er lengst hefur haldið á prjónum og stundað heyvinnu af öllum þeim, sem nú lifa í þessu byggðarlagi, nýtur þess að vera ein. Gilið, áin, fossinn, það eru vinir hennar. Hún hefur ekki getað heimsótt þá í átta ár, — fyrr en í dag. „Hvurn andskotann í djöflinum hefur kerlingarskrattinn þotið? Magnús! Magnús! Ert þú að stela öllu brennivíninu, þitt hex? Viltu bara láta sjá, að þú kunnir að skammast þín, og komdu bara með það, ellegar ég gef þér á hann! — Það eru ekki svo glæsilegar viðtökurnar hérna!“ „Nú — nú, hix! Hvað er þetta, piltur!“ Sonur bóndans í Hvammi og vinnumaður af næsta bæ hafa rið- ið í hlað á undan öðrum. Þeir eru nú fyrir skömmu stignir af baki, heimamaðurinn hefur þegar vaðið inn í bæinn en engan séð. Kerl- ingin, sem hafði verið sagt að bíða fólksins með heitt kaffi á könnunni, — hún er horfin, — hver veit, hvert hún hefur farið. Heimurinn er á öðrum endanum. Magnús vinnumaður í Hvamms- koti hefur brennivínið upp á vas- ann og nýtur þess betur en ferða- félaginn sonur sjálfs bóndans í Hvammi. Þeir eru hvor um sig tilbúnir að slást um pyttluna nú

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.