Dvöl - 01.04.1946, Blaðsíða 62

Dvöl - 01.04.1946, Blaðsíða 62
140 D VÖL Þórbergur Þórðarson: Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar I. Fagurt mannlíf. Bókaútgáfan Helgafell. Revkjavik, 1945. Með þessari bók hefur Þórbergur Þórð- arson byrjað þriggja eða fjögurra binda ævisögu Árna Þórarinssonar fyrrverandi prófasts. Við séra Árna munu fjölmargir kannast, og þótt ekki væri nema þess vegna, mun bók þessi vera aufúsugest- ur margra. Nú er því þannig farið með mig, að ég greip þó ekki til bókarinnar i þeim til- gangi fyrst og fremst að lesa ævisögu prests, heldur vegna þess að Þórbergur Þórðarson er einn af þeim fáu höfund- um, sem ekki birtir neitt eftir sig án þess ég lesi það óðar en það kemur á þrykk. Og strax er bókin kom í verzlanir tók ég til að lesa hana og hef stöðug't veriö að glugga í hana í allan vetur, ýmist hjá vinum mínum eða heima hjá mér, og aldrei þótzt vera búinn að lesa hana nógu vel. Þótt frásögnin af bernsku og æskuár- um Árna frá Stórahrauni sé mjög at- hyglisverð, hefur mér þótt skemmtilegast að kynnast aukapersónunum, sem fram koma á sjónarsviðið; — Guðmundi gamla dúllara, sem ekki kunni að meta gildi peninga, — fyrirmanninum Magnúsi And- réssyni, sem var svo mætur maður á sinni tíð, að niöjar hans þóttu heilagir menn, — og síðast en ekki sízt gömlu konunni, sem ég man svo vel eftir frá því ég var smákrakki hér á Reykjavíkur- götum, henni Signýju, er ég hélt, að dáin væri drottni sínum fyrir mörgum árum. Allar þessar aukapersónur gefa bókinni það mikið gildi, að án þess að við þær væri lögð slík rækt og þarna er gert, myndi öll bókin hafa orðið leiðin- leg aflestrar, þrátt fyrir það marga og merkilega sem beinlínis viðkemur „sögu- hetjunni" sjálfri. Ævisögur eru nefnilega sú tegund bóka, sem er einna mestur vandi að skrifa án þess að þær verði leiðinlegar og tímabundnar upptalningar á ómerkilegum atriðum, ættum einstakra manna, o. s. frv. Með ritun þessarar ævisögu bjargar skrásetjarinn frá glötun ýmsu, sem út af fyrir sig er athyglisvert úr lífi og skoð- unum manns, sem vex upp úr aumustu fátækt í það að verða prestur, lærður maður á sinu sviði og á elliárunum harö- ánægður með sjálfan sig, ævistarf sitt og ætt sína; — manns, sem upplifir öll merkustu tímamótin í þjóðarsögunni á seinustu tímum, þroskast með þjóðinni á viðreisnarárum hennar, en er þó of snemma í tíðinni til þess að komast nokkru sinni í snertingu við þá strauma, sem móta munu þjóðlífið í framtíðinni. Eigi að síður er það nokkurs vert að eiga skýra og óljúgfróða heimild um starf og hugsun eins sveitaprests frá síð- ari áratugum, skrásetta eftir prestinum sjálfum, og það af manni, sem enginn efast um, að er færari til þess flestum öðrum á landinu. Auk þess sem þannig bækur eru jafnan einhver viðauki við þjóðlífslýsingar frá þessu tímabili, sem hér um ræöir. 26./6. ’46. Elías Mar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.