Melkorka - 01.12.1944, Blaðsíða 5
MELKORKA
TÍMARIT KVENNA
Ritstjóri:
RANNVEIG KRISTJÁNSDÓTTIR
Ritnefnd: Þóra Vigfúsdóttir • Valgerður Briem • Petrína Jakobsson
2. hefti ■ Desember • 1. árgangur
FRAM TIL STARFS
ísland lýðveldi
Við, sem lifað höfum maí
og júní 1944 munum aldrei
gleyma þeim mánuðum. Svo
þrungið var loftið af vorhug
heillar þjóðar, lýðveldiskosn-
ingar í maí, gildistaka lýð-
veldisins — þjóðhátíð í júní.
Hugur allrar þjóðarinnar var
sem stór straumhörð á í vor-
leysing, og áin braut af sér
síðustu klakabönd erlends
valds. En sól vonarinnar lék
að geislabroti í dropum leys-
ingarvatnsins — hugum fólks-
ins.
Landsfundur kvenna
Leikur geislanna í dropum
leysingarvatnsins hélt áfram, og landsfundur
kvenna var haldinn í sólskini, þó dimmt væri í
lofti.
Fyrsta rúmhelga daginn eftix lýðveldishátíðina
19. júní á hátíðisdegi íslenzkra kvenna hófst
landsfundur þeirra. Fulltrúarnir voru frá hinum
sundurleitustu félögum, en höfðu allir sama tak-
mark: að reyna að finna sameiginlegan grund-
völl fyrir samvinnu allra kvenna um réttindamál
sín, og það tókst. Vilji kvenn-
anna sameinaðist einnig sér-
staklega á fundinum í Iðnó í
stórt vatnsfall, sem enn á eftir
að auka straumþungann og
sameinast stærri vötnum, þar
til það brýtur af sér öll bönd
fjárhagslegs og félagslegs ó-
réttlætis, er konan á enn við
að búa.
Eftir hinn opinhera kvenna-
fund í Iðnó sagði ein mikils-
metin fundarkona, að sér fynd-
ist fylling tímans vera komin
fyrir kvenréttindin, og það
sagðist hún aldrei hafa fundið
fyrr en hún sá allar þessar
konur frá stéttarfélögunum
standa upp og heyrði þær tala
um rétt sinn. En hugsunin í niðurlagsorðum
flestra ræðukvenna var eitthvað svipuð því, sem
felst í þessum orðum Rannveigar Þorsteinsdóttur:
„Við höfum stofnað hér lýðveldi og kjörorð
þess er frelsi og jafnrétti. Jafnframt heyrum við
af vörum æðstu manna þjóðarinnar, að lýðveld-
ið og framtíð þjóðarinnar hyggist fyrst og fremst
á þjónustu, á fórn. Ég veit, að allar konur fund-
arins munu ekki síður en karlmenn standa vörð
MELIÍORKA
35