Melkorka - 01.12.1944, Page 23

Melkorka - 01.12.1944, Page 23
er ódýr og hollur matur. Burt með öll börn af baklóðum og göturæsum, látum menntaða upp- eldisfræðinga og barnfóstrur annast barnaupp- eldið í barnaheimilum og í barnagörðum, sem eru boðleg menningunni. . . . Frú Breiðdal (grípur fram í) : Haldið þér, að ég sé hingað komin til að hlusta á þvílíka romsu. Ég er komin hingað til að tala um starf yðar og setja yður reglur. Yður blýtur að vera Ijóst, að þér hafið fyrirgert trausti mínu og góðvild með frumhlaupi yðar. Þér hafið sært mig djúpu sári um leið og þér blettuðuð heiður blaðsins. Erna: Mér þykir leitt, frú Breiðdal.... Frú Breiðdal (grípur fram i): Ég veit að þér eruð ekki slæm manneskja, en þér eruð á villi- götum og því hörmulegra er það, sem þér eruð gædd góðum gáfum og persónuleika til að vinna menn á yðar mál. . . . Hafið þér nokkurn tíma hugsað út í hvers vegna ég, öldruð kona, sem lítið hef sett mig inn í blaðamennsku, legg á mig þær áhyggjur, sem blaðaútgáfu eru samfara? Erna: Já, frú, og ég hef undrazt það vegna þess, að mér er kunnugt um að þér hafið fengið ágæt kauptilboð í blaðið. Frú Breiðdal: Ég hef fengið fjölda kauptil- boða. En ég hef tekið tryggð við þetta blað. Það er eins og ég sé gróin við það með hjartarótum mínum. Á ég að segja yður ástæðuna? (í lægri róm). Nú sýni ég yður mikinn trúnað, frú Erna, en ég veit að þér eruð ekki ódrenglynd og því verður leyndarmál mitt vel geymt hjá yður. Erna: Því megið þér treysta, frú Breiðdal. Frú Breiðdal: Eins og þér vitið, var maðurinn minn sálugi einhver mesti blaðamaður hérlendis. (Erna hneigir höfuðið viðurkennandi). Nafn hans var alltaf trygging fyrir velrituðu og skemmtilegu blaði. Honum var það leikur einn að afla svo margra kaupenda að blaði væri fjár- hagslega borgið. Hann keypti eða stofnaði blöð og seldi þau smátt og smátt,'stundum gaf hann út þrjú—fjögur blöð samtímis, en það voru aldrei þau sömu til lengdar. Mér sárleiddist þetta blaða- brask hans, skildi ekki þessa undarlegu ástríðu hans, þetta tafl með ný blöð, sem hann virtist missa áhuga fyrir um leið og þau voru orðin traust og arðvænleg fyrirtæki. Við fjarlægðumst hvort annað, fleira en þetta var orsðkin. Ég fann grunninn riða undir fótum mér, heimili okkar var að liðast í sundur. Á þeim árum var hjóna- skilnaður erfiðari, fátíðari og hneykslanlegri en nú er. Mér lá við algerri örvinglan. (Tekur sér ofurlitla málhvíld og horfir á Ernu, sem hefur hlustað á hana með samúð). Ég veit ekki livað kemur að mér að vera að segja yður þetta. Erna: Þér þurfið ekki að óttast, að ég fari illa með það, sem þér segið mér í trúnaði, frú Breið- dal. Frú Breiðdal: Nei, það veit ég. — Já, ég var að segja yður frá örvinglan minni. I einu hug- sýkiskastinu ráfaði ég burt frá heimili mínu. Það var um haust og veður skuggalegt. Ég hafði í rauninni ekkert takmark, en hvarflaði þó í hug, að dauðinn væri einfaldasta lausnin á ógæfu minni. Þó að hugsunin næði ekki á mér föstum tökum, var þó eins og hún teymdi mig lengra og lengra frá heimili mínu, ósjálfrátt stefndi ég til hafs. Myrkrið skall á, einstæðingsskapurinn yfir- þyrmdi mig, ég hneig niður, örmagna og fannst einu gilda, hvað um mig yrði. Liklega hefði ég legið þarna lengi og hlotið af lífshættuleg veik- indi, ef ég hefði ekki séð blysið.... Erna: Blysið? Frú Breiðdal: Já, ég sá blys. Fyrst hélt ég, að þetta væri ofskynjun eða eitthvað dularfullt, en hvað sem Jjað var, tendraði Jjað von og eftirvænt- ingu, ég reis á fætur og gekk á móti því. Þegar ég kom nær, sá ég andlit fölt af ótta. Maðurinn minn bar blysið. Þegar ég kom ekki heim áður en myrkrið skall á, varð hann ofsalega hræddur, kallaði sarnan nokkra menn til að leita mín. Hann hafði ekki J>olinmæði til að bíða eftir því að þeir byggju sig til fararinnar og kveiktu á Ijóskerum, heldur þaut af stað á undan J)eim og þreif með sér logandi kyndil. Þetta atvik hafði örlagarík áhrif á sambúð okkar. Eftir þetta mátti hún kall- ast góð. í fögnuði sínum yfir ]>ví að hafa heimt mig úr helju og leyst heimili okkar úr ógæfuviðj- unum, stofnaði maðurinn minn heimilisblaðið. Yður finnst þetta ef til vill undarlegt, en ]>að var honum líkt. Hann gaf mér þetta blað og valdi því nafnið Blysið. Ég hef alltaf litið á þetta hlað sem tryggðapant frá manninum mínum og ekki viljað melkorka 53

x

Melkorka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.