Melkorka - 01.05.1945, Síða 18
Þjóðin væri 50—100 árum eftir öðrum þjóð-
um í Evrópu, það þyrfti að vinna upp á
skemmri tíma en 10 árum. Þetta yrði aðeins
hægt með því að allir, bæði karlar og konur,
tækju þátt í uppbyggingunni. Og það komu
allir, konurnar ekki síður. Þær yfirgáfu
hlóðirnar og tóku skóflu og haka í liönd
eða fóru í verksmiðjurnar og smíðuðu vél-
ar, aðrar lærðu svo að stjórna þeim; þær
fóru á sjóinn og sigldu skipum Sovét-
ríkjana til fjarlægra landa og þær lögðu sig
eftir vísindum, því þau voru undirstaða allr-
ar uppbyggingarinnar. Svo er nú komið, að
engin starfsgrein mun til innan vébanda
Sovétlýðveldanna, sem konur vinna ekki að
jöfnum höndum og karlmenn og fyrir sömu
laun, enda eru nú aðeins 2% kvenna í So-
vétríkjunum, sem vinna eingöngu heimilis-
störf. Árangurinn er í dag augljós öllum
heiminum. Eftir 20—25 ár er þessi ómennt-
aða bændaþjóð orðin meðal fremstu þjóða í
tækni og verkkunnáttu, og hugrekki henn-
ar, samhugur og hetjudáðir lýsir sem brenn-
andi viti um alla jörð.
Hver áhrif þessi lífsháttabreytni hefur
haft á konurnar sjálfar, sýna ummæli, er
danskur prófessor í stjörnufræði hafði um
rússnesku konurnar. Hann var laust eftir
1930 boðinn til Sovétríkjanna til að athuga
merkilegan sólmyrkva, sem ekki sást annars
staðar. í grein, sem hann skrifaði eftir heirn-
komuna, sagði hann, að ekkert hefði vakið
eins eltirtekt sína í Rússlandi og konurnar,
og sagði mörg dæmi um það. Hann hafði
meðal annars horft á íþróttakonur fylkja
sér um göturnar í Moskva. Þar þóttist hann
sjá alveg nýja konu, frjálsa, djarfa og leiftr-
andi af æskuþrótti. Hvar sem hann kom
mætti hann konunni í öllu starfi, og alls
staðar var hún hin sama. Hann kvaðst spá
því, að konurnar í Rússlandi tækju völdin
mjög svo bráðlega.
Hann mun ekki reynast sannspár um það,
því að rússnesku konurnar munu í framtíð-
inni eins og nú standa við lilið karlmanna
/---------------------------------\
J Ó H. V. J E N S E N:
VÍSUR
Hreinsvalar hendur
huldutré rétta
móti sumarmána.
Árið eftir:
Grænkandi viðir
glóa í ljósi
mildrar munarnætur
Árið eftir:
Þýðvindar blása,
þýtur í laufi,
kveður fugl á kvisti.
Eftir níu ár:
Enn grænka viðir
í góðu ljósi
svalrar sumarnætur.
Fríða Einars þýddi
V_________________________________/
eins og góðir félagar og rækja skyldur sínar
eins og þeir.
Það er hvergi i heiminum ósk konunnar
að fd yfirráð, heldur að vera álitin mann-
eskfa, sem hefur sams konar ábyrgð á sinu
eigin líf i og gagnvart heildinni eins og brœð-
ur hennar, karlmennirnir.
14
MELKORKA