Melkorka - 01.05.1947, Qupperneq 13

Melkorka - 01.05.1947, Qupperneq 13
KVENRÉTTINDAFÉLAG ÍSLANDS 40 ÁRA Hinn 27. janúar síðastliðinn varð Kvenréttindafélag íslands 40 ára. — Afmælisins var minnzt með samfelldri dagskrá í útvarpinu og fjölmennu hófi í Oddfellowhöllinni. Einnig gaf félagið út stórt og vandað afmæíisrit um sögu og starfsemi félagsins á þess- um árum. MYND AF STJORN K. R. F. I. talið frá vinstri, neðri röð: Charlotta Albertsdóttir, gjaldk., Sigriður Magnusson, form. Efri röð: Nanna Ólafsdóttir, Ragnh. Möller og Svafa Þorleifsd. manni, sent aðeins á vinnuorku sína, fjár- hagslegt öryggi með þjóðfélagstryggingum. Öll Norðurlöndin og England, svo að ná- grannar séu nefndir, liafa komið á hjá sér almannatryggingum, og alls staðar er sama sagan: Tryggingarnar veita ekki nema brot af því öryggi, sem alþýðuna hefur dreymt um að öðlast og henni með réttu ber. Alls staðar stendur á því sama. Fjármagn- ið vantar, hversu rík sem þjóðin er. Aðeins í Ráðstjórnarríkjunum eru tryggingar jafn- vel fjölþættari en alþýðuna hér á Vestur- löndum hefur dreymt djarfast. Nær allur kostnaður við þær er borgaður af atvinnu- tækjunum. Einstaklingsiðgjöld til þeirra trygginga eru ekki til. Að öllu samanlögðu hygg ég, að þessi nýja löggjöf okkar sé sí/.t verri en trygginga- löggjöf á Norðurlöndum er, og í sumum tilfellum betri. El’ ti 1 vill hefur skipun Al- þingis og pólitísku skilyrðin þar átt mik- inn þátt í, að þessi árangur náðist. Og svo Itak við allt hinn sterki vilji verkafólksins og samtök þess, sem eru róttækari hér en annars staðar á Norðurlöndum. Og enn mun svo fara, að viðunandi endurbætur á löggjöfinni munu því aðeins fást, að vilji fólksins og samtök séu nægilega öflug. MELKORKA 9

x

Melkorka

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.