Melkorka - 01.05.1947, Blaðsíða 22

Melkorka - 01.05.1947, Blaðsíða 22
HúsmóðurstarfiS og framtíðin Eftir Nönnu Olafsdóttur Það er mikið ritað og rætt um skipulega hagnýtingu vinnuaflsins, vegna liins ónóga mannafla tii aðalatvinnuveganna. Of mikið af fólki sé við verzlunina og óþarflega mik- ill vinnukraftur við iúxusbyggingar. En hvergi hefur verið minnzt á óhÓfseyðslu á vinnuafli til gólfþvotta, matartilbúnings og barnauppeldis. „Við erum fáir og smáir“ er uppáhalds- skjói meðalmennskunnar og lágkúrunnar og æfinlega sagt, þegar þarf að afsaka aum- ingjahátt. Við erum ekki smærri en við sjálf viljum og vinnuaflið notum við aðeins til hálfs. Verkafólk kaupum við erlendis frá, og þegar það nægir ekki, liggja verkefni ó- Jeyst, og andvarpið „við erum fáir og smáir“, er einskonar líkræða. Hvar er þá þetta vinnuafl, sem við not- um ekki? Það er á heimilunum. Við sóum stórkostlegu vinnuafli í óarð- bær heimilisstörf fyrir ímyndaða rómantík, á öld nýsköpunar og gerbreytinga í atvinnu- háttum. Flestallar giftar konur, svo og marg- ar ógiftar, eyða allri sinni lífsorku í gólf- þvotta, matargerð og uppeldi barna að hálfu leyti (þar sem börn fá, að minnsta kosti nú orðið, uppeldi sitt að hálfu á götunni og sum að öllu leyti). Þessi staðreynd stangast að vísu allliarkalega á við barlóminn um fá- tæktina og fólksekluna, því að við getum hvorki verið fá né fátæk, þegar við höfum ráð á slíkum lúxus. Með rökum verður ekki annað sagt, en að við lifum í þessu tilliti um efni fram. Við verðum að skipuleggja gólfþvottinn, matar- gerðina og barnauppeldið og fá konurnar út í atvinnulífið. Það er rétt að gera sér grein fyrir slíkri breytingu, miðað við liagsmuni konunn- ar. Langflestar konur giftast, stofna heimili, eignast börn og segja þar með skilið við atvinnulífið. Eins og hagar til í okkar þjóð- félagi nú, getur þetta hlutskipti orðið þrot- laust erfiði vegna vöntunar á aðstoðarfólki til heimilisstarfa. Konan verður þræll á eig- in heimili og missir lífsgleðina furðu fljótt. Ríka konan er að Jdví leyti betur sett en hin fátæka kynsystir hennar, að stritið Jrarf ekki að ræna hana lífsánægjunni. Aftur á móti á hún á hættu, ef til vill vegna ónógs verk- efnis lieima fyrir, að verða mest í samræmi við fína húsið og lúxusbílinn, nokkurskon- ar aðalmubla. Hjónabandið Jrýðir einangr- un og af einangrun ieiðir Jrrengri sjóndeild- arhringur. Ef konan hefur htið að gera heima og góðan tíma aflögu, liggur leiðin venjulega til vinkvenna, sem líkt er ástatt um og áhugamálin verða fá og smá, hvorki vekjandi eða þroskandi. í þessunr hópi eru tiltölulega fáar konur. Á hinu leitinu eru svo flestar húsfreyjur þessa iands, þær, senr vinna öll heimilisstörfin sjálfar og annast uppeldi barnanna. Þær eru að frá morgni til kvölds og hafa lítinn eða engan tínra til að sinna sérstökum hugðarefnum. Heimilið krefst vinnu þeirra óskiptrar. Það er t. d. eftirtektarvert, svo að nefnt sé eitt atriði, að eini meðlimur fjölskyldunnar, sem sjaldan hefur tínra til að ldusta á útvarp, sér að fullum notum, er húsmóðirin. Annað er einnig atlryglisvert. Hið sífellda ónæði, kvörtun hér og barnsgrátur þar og bið ei- lífa stjan í kringum eldri meðlimi fjöl- 18 MELKORKA

x

Melkorka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.