Melkorka - 01.05.1947, Page 15

Melkorka - 01.05.1947, Page 15
inni. Hann liafði hálf gaman af tilburðum hennar, en brá þó við og fór út, þegar hann sá, að allt stóð fast. Leyfðu mér að eiga við þetta, kona. Var- aðu þig á þyrnunum. Þú minnir mig bæði á Mörtu og Maríu, þegar ég sé þig í garðin- um, Guðrún mín. Ég held þú hefðir átt að verða drottins þjónn, en ekki ég. Hver veit nema ég sé það h'ka. Að minnsta kosti hef ég meiri frið í sál minni en þú, séra Einar. Það segirðu alveg satt, kona góð. Og hann hef ég fundið í blómum og blöðum; í brumhnöppum og birkistofnum. Þakka þér nú fyrir hjálpina, góði minn. Komdu og setztu hérna. Finnurðu ilminn? Einhverja angan finn ég. Það er mjaðarjurtin, hún ilmar svona. Ég setti hana hérna fyrir ofan byrgið af ásettu ráði. Sérðu ekki eftir að fara héðan, Guðrún? Það getur nú verið að liugur minn dvelji hér eitthvað, þó að við flytjum austur. — Stundum finnst mér eins og sál mín sé ofin inn í hvert blað og livern stofn í garð- inum héma. En ég sé ekki eftir neinu. Það er heillandi að byrja frá rótunr og sjá þenna yndislega gróður rísa upp og gjörbreyta um- hverfinu. Heyrðu, Guðrún. Það er vísast að ég reyni að hjálpa þér duglega, þegar við kom- um að Felli. Þú talar oft svo fallega, Einar minn Og stundum meina ég það; þú hefur von- andi tekið eftir því. Og nú ætla ég að segja þér eitt í fullri alvöru. Ég skil það vel, að þú getir farið Iréðan nreð góðri samvizku, því það ert þu, senr lrefur kristnað staðinn. Maddama Guðrún stóð brosandi upp. Þá varð henni litið út í fjarskann, yfir dalinn og fjöllin hinumegin, þar sem sólin lrafði kvatt allt, nenra efstu brúnirnar á Skarðstindunum — og bros hennar lrvarf fyrir sterkri framandi þrá. K A R I N B O Y E : B ROT Æ.sir riðu upphimin, skein á skjaldarrendur, göptu í Geigskógi gin forynja, brugðnir voru brandar sem bláleiftur, gerðist pys .og gnýr af peysireið. Dans stigu huldir í daggtúni, grœnkuðu grös undan glófótum, fegraðist heiðloft og hafsstrendur, daggfögur nótt glóði. í dagljósi. Huldir og œsir sk ip t u h eimslög u m. Drifnar voru skikkjur ása dýrum steihum. Eins og skuggi og skin i slióga lundum huldur hurfu og birtust, hvikult var peirra far. Svo var efni skipt milli ása og hulda: Erfa skyldu œsir iorð og gerðir, hluti handgreipa, hluti fram komna, kom i hulda hlut, hvað er ekki er. 'FRÍÐA EINARS þýddi _______________________________) MELKORKA II

x

Melkorka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.