Melkorka - 01.05.1947, Side 30
þar yfir, á ölln landinu. Fávitarnir eru mara
á heimilunum og það íer einnig miklu bet-
ur um þá á hæli, sem miðað er við þarfir
þeitra. Arnfinnur Jónsson flytur nú breyt-
ingartillögur við lögin um fávitahæli þess
efnis, að ríkið verði nú skyldað til að reisa
slík liæli.
Fjöldi kvenna innan allra pólitískra
flokka mótmælti því, að ákvæðin unr ekkju-
bætur og greiðslur til einstæðra mæðra voru
felldar niður, er tryggingarlögin voru af-
greidd. Og nú í vetur liélt Kvenréttindafé-
lag Islands opinberan fund til þess að krefj-
ast endurbóta á lögunum. Steingrímur Að-
alsteinsson flytur nú breytingartillögur við
lögin þess efnis, nreðal annars, að hlutur
ekkna og einstæðra mæðra verði réttur, en
Katrín Pálsdóttir gerir á öðrum stað í blað-
inu nánar grein fyrir þessu máli.
Loks hafa á þessu þingi verið sett lög um
afstöðu foreldra lil óskilgetinna barna, og
felast í þeinr lögunr ýmsar réttarbætur bæði
fyrir ógiftar mæður og börn þeirra.
Það er sjálfsagt engin tilviljun, að öll
þau mál, er lrér um ræðir, að einu undan-
skildu, eru flutt af þingmönnum sósíalista.
Það er liugsjón sósíalismans, að konunni sé
ekki einungis veitt fullt jafnrétti á pappírn-
unr, heldur sé það einnig trvggt, að hún
geti notið þess jafnréttis. En til þess að hún
geti það, þarf að tryggja aðstöðu hennar
senr nróður, afnema það nrisrétti, sem enn
ríkir milli kynja í fjárhags- og atvinnulíf-
inu, og síðast, en ekki sízt, gera henni mögu-
legt að búa fjölskyldu sinni notalegt heinr-
ili, án þess að hún þurfi að sligast í fjárhags-
basli og heimilisannríki.
R. K.
BROT ÚR VIÐTALI
við Vivian Mason, svarta menntakonu frd Bandaríkjunum
Nazisminn er að velli lagður. Að nrinnsta
kosti í orði kveðnu. Þeir tímar eru liðnir,
er menn urðu að láta fletta upp í gömlunr
kirkjubókum og skrifa vottorð til sönnunar
því, að enginn dropi af gyðingablóði leynd-
ist í æðum þeirra. Að því nráli ósönnuðu
hefði þeim ekki verið frjálst að setjast á
bekk með öðru fólki né sækja leikhús og
kvikmyndahús né ganga í búðir samtímis
öðru fólki. Þeir tímar eru liðnir, er það
þótti leyfilegt að smána nrenn eða hrækja á
þá vegna þess að þeir hefðu öðru vísi vaxið
nef en algengast var, eða refsivert að gera
einkavini sínum greiða, ef það sannaðist, að
iiann væri kominn af hinum útskúfaða kyn-
þætti. Gegn þessum ósiðum var barizt til
sigurs í síðustu heimsstyrjöld, eða svo skyldi
maður ætla að verið lrafi. Óvildin til fram-
andi kynþáttar er samt djúprættari en svo,
að hún láti skipast við fyrsta högg. Frá
landamærum Póllands berast fregnir af
nauðstöddu fólki, sem er á flótta undan
kynþáttahatrinu. í mörgum af fylkjum
Bandaríkjanna eru enn í gildi lagafyrir-
mæli, sem valda misrétti milli livítra manna
og svartra, og eru raunar í beinni mótsögn
við ákvæði stjórnarskrárinnar um jafnrétti
allra þegna Bandaríkjanna. í tuttugu og
átta af fylkjunum eru hjónabönd milli
hvítra og svartra ólögmæt. I öllum Suður-
ríkjunum er svertingjum bannað að stíga
fæti inni í hús hvítra manna nema til þess
eins að vinna þar einhver þjónustu- eða
skítverk. Svertingjar eru látnir búa í sér-
stökum borgarhverfum. Börn þeirra eru lát-
in ganga í sérstaka skóla. (Kostnaður til
fræðslu er 59 dollarar á ári handa hverju
livítu barni, en aðeins 9 handa liverju
26
MELKORKA