Melkorka - 01.09.1949, Qupperneq 8

Melkorka - 01.09.1949, Qupperneq 8
málsins hefur auðvitað ákveðinn tilgang, en heiðarleik er ekki liægt að nefna í sömu andránni og það. Allt offorsið og öll þving- un þessa máls í einn farveg er alvarleg að- vörun og mann grunar að aðferð sem gafst svona vel muni þykja hentug öðru sinni. Ef kjósandanum er annt um lýðræði- og frelsi, ætti hann að hugleiða meðferðina á þessu hvorttveggju af hálfu þingmeirihlut- ans og blaða hans, og ef sú athugun skyldi leiða í ljós, að á milli ber í skoðunum, er mikill ábyrgðarhluti að greiða þeim fram- bjóðanda atkvæði, sem ber er að því að hafa að engu lýðræðið, þegar svo ber undir. Þeg- ar einu sinni er komið inn á þá braut, að þingmaðurinn tekur sér vald, sem liann ekki hefur, getur ekkert bjargað frá áframhald- andi yfirtroðslum nerna atkvæði kjósandans gegn slíku háttalagi. Það er hættulegt fyrir einstaklingana og ekki síður þjóðariteildina, að hafa rnenn við stjórnvölinn, sem láta sig engu skipta mannréttindi og lýðræði, ef annað hentar betur áformum þeirra. Þá minnka fljótt lýðréttindin og stutt leiðin í lögregluríkið. Ekkert tal og engin skrif til lofs lýðræðinu, hversu umfangsmikil sem Jtau eru, fá haggað þeirri staðreynd, að við höfum þegar horft á það troðið í svaðið og að það verður endurtekið í enn ríkari mæli, ef fólkið þolir Jtað óátalið. Næstu kosningar verða örlagaríkar fyrir okkur, íslenzkt fólk. Elestallir þeir menn, sem brotið hafa aliar reglur velsæmisins í stjórnmálum á undanförnum mánuðum, munu hefja framboð á sér aftur af full- komnu purrkunarleysi þeirra manna, .sem' ekkert siðgæði þekkja og einskis siðgæðis ætlazt til af öðrum. Brosandi undirhyggjan mun bjóða þér arminn, kjósandi góður, og biðja þig þess síðastra orða að greiða lýðræð- inu atkvæði, lýðræði þeirra 37 manna, sem samþykktu Keflavíkursamninginn og Atl- anzhafssáttmálann og liöfðu að engu Jóær hugsjónir friðar og frelsis, sem við byggjum tilveru okkar á. Eru þá spumingamar þess- ar: Samþykkjum við gerðir stjórnmála- manna okkar, jDegar þeir játuðu J^eim tveim samningum, er að ofan getur? SamJ^ykkjum við að mannréttindum og lýðfrelsi sé vísað út í yztu myrkur? Á svarinu kunna örlög okkar allra að byggjast. Það er ekki ástæðuiaust að leita stuðnings íslenzkra kvenna gegn þeim ódrengskap, sem stjórnmálamennirnir hafa beitt land og þjóð síðastliðin þrjú ár. Konurnar hafa aldrei lotið svo lágt, að bjóða land sitt fyrir súpudisk né fengið glýju í augun af erlendu valdi. Þar eiga þær hreinan skjöld frá upp- hafi vega. En þær hafa stundum tekið af skarið, þegar aðrir virtuzt ekki ætla að geta risið upp gegn ósómanum. Því lifa Jíessar konur í sögunni, að þær áttu þann neista mannslundar, sem sljóleiki samtíðarinnar fékk ekki unnið á, og þær sýndu eftirtíman- uin að meðal kvennanna átti þjóðin oft skel- eggasta málsvara íslenzks þjóðarsóma. Konurnar eru nú rífur hluti kjósenda og valdamiklar ef þær vilja beita sér. Það yrði mikill sigur fyrir samtíð og framtíð, ef hver Jteirra legði fram sinn skerf til þess að bægja frá þeim óheillum af innlendum og erlend- um rótum, sem sækja að öryggi fólksins. Móðirin vildi láta athuga hvort litla dóttir hennar væri ekki á allan hátt alveg normal eins og börn eiga að vera og fór þvi með hana til sálarfræðings. Vfsinda- maðurinn spurði margra spurninga og loks sagði hann: Ert þú drengur eða stúlka? Drengur, sagði litla stúlkan. Sálarfræðingurinn varð hvumsa við en vildi þó reyna aftur. I'egar þú ert orðin stór ætlarðu þá að vera maður eða kona? Maður, svaraði telpan. Á heimleiðinni spurði móðirin: Af hverju svaraðirðu svona kjánalega spurningum mannsins? Þessi gamli bjáni! Fyrst hann spurði mig svona vit- lausra spurninga vildi ég líka gefa honum vitlaus svör. Hann gat ekki platað mig. Svo var það maðurinn, sem hafði alltaf skeiðina í kaffibollanum, þegar hann drakk kaffið. Dag nokkurn gleypti hann skeiðina og nú getur hann ekki hrært — sig. 48 MELKORKA

x

Melkorka

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.