Melkorka - 01.09.1949, Blaðsíða 15

Melkorka - 01.09.1949, Blaðsíða 15
kyni aí mestum skilningi, og svo er það einnig um hana. Fyrir kemur, að hún láti konuna í krafti móðurkærleikans taka írumkvæðið af manni sínum, en oftast er það maðurinn, sem fyrir ranglæti örlag- anna, er samfélagið hefur síðan fullkomn- að, verður sá aðilinn, er minna þjáist í sam- lífi karls og konu. Verk hennar í lreild eru Alberte-tYÍlógí&n (Alberte og Jacob 1926; Alberte og friheten, 1931; Bare Alberte, 1939) og Kranes Konditori' auk ljögurra smásagnasafna. Smásögur hennar eru oft ekki annað en riss, en jafnframt eru þær heilsteyptar og sýna okkur ógleymanlegar svipmyndir af mannlegum örlögum. Peningar eru ekki allt — en þeir eru lyk- illinn að öllu hinu, segir í einni smásögu liennar. Þetta er bitur sannleikur, og Cora Sandel vill ekki bregða upp neinum tál- sýnum. Hún ákærir engan, kvartar einung- is. Köllun hennar er ekki að endurbæta, aðeins að ,,geta sagt ögn af sannleika“. En gégnum hina drottnandi lýsingu má heyra einstaka hróp einmana kvenna, er hefur orðið fótaskortur í lífinu, þegar þær voru í útlöndum og leituðu svolítillar blíðu til að ylja sér við. í H/heríe-flokknum verður fyrsta bókin að teljast liafa mest bókmenntalegt gildi. Hún fékk líka þegar í stað hljómgrunn í Noregi, þar sem Cora Sandel hefur raun- verulega frá upphafi átt skilningi að mæta. Segja má að Alberta sé að vissu leyti skáld- konunnar annað ég. í bókinni segir frá ungiá stúlku, er flýr einmanaleik og vöntun á möguleika til að tjá sig. Braut hennar er grýtt, fátt sem vekur gleði, tilfinningar hennar ríkar, en inniluktar, þar til henni tekst sem skáldkonu að láta þær í ljós. Lýs- ingin er full af sjálfs'háði og skopi, sem ein- kennir Coru Sandel sjálfa. í fyrstu ákærir hún ennþá umheiminn. Sviðið er meðal embættisfólks í Tromsö. Vetrarmyrkrið leggst þungt á hugina. Einn hinna ungu manna, sem þegar hefur yfirgefið heimili sitt, segir: Nej for at klare sig gjennem en lang árrække heroppe bör man nok enten være temmlig fattig i ánden elles ossá meget rik. Gjennemsnittet má pá en eller annen máte ta skade pá sjælen. Alberta er ekki meðalmanneskja, og vonsvikið eldra fólkið ætlar að kæfa hana. Alberta á sjálf rnikla sök á óláni sínu. Hún veit alltaf livað hún vill ekki, en aldrei hvað hún vill, nema í eitt einasta skipti. í Alberta og frelsið sjá- um við hana í París, þar sem hún er jregar búin að vera mörg ár. Við kynnumst þar allt annarri borg en París ferðamannsins. Það er tilvera hinna vinnusömu *og félags- lyndu listamanna frá Skandinavíu í París aldamótanna. Er Alberta hefur lengi lifað í einmanaleik og fátækt og orðið fyrir mikl- um og sárum vonbrigðum, tekur hún sam- an við norskan málara til þess að finna vexnd og hlýju í sterkum örmum hans. Lyndiseinkunnir þein-a eru svo gerólíkar að lesandanum hlýtur undireins að standa stuggur af þessum íáðahag. Þegar í fyista kaflanum af Aðeins Alberta kemur í ljós, að uggurinn var ekki ástæðulaus. Alberta er óhamingjusöm, henni misheppnast hús- móðurstaðan og allt, sem hún snertir, verð- ur klunnalegt og ófagurt í höndum hennar. Hún finnur til þakklætiskenndar gagnvart manni sínum en engiar sannrar ástar. Syni sínum ann hún mest, en jafnvel í lionum finnur hún -eitthvað framandi. Enginn hef- ur valdið henni jafnmikilli óró eða eins miklum áhyggjum og hann, en hann hefur líka gefið henni þær fáu stundir unaðsiíkr- ar hamingju, er hún fær að lifa. Loks hryn- ur allt umhverfis Albertu. Hún á nokkia leynda ástafundi með óvígum frönskum hermanni, rithöfundi, en hún varpar því einnig fiá sér og flytur með manni sínum til Noregs, ákveðin í því að rífa sig þar lausa og byi'já að lifa sjálfstæðu lífi. Bare Alberte er fremur lauslega x'ituð, næstum eins og ann. áll. Kranes konditoi\i er hinsvegar mjög með- vituð í framsetningu og því áhrifaríkari, en ekki er þó örgrannt um að lesandinn sakni MELKORKA 55

x

Melkorka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.