Valsblaðið - 01.05.1993, Qupperneq 6

Valsblaðið - 01.05.1993, Qupperneq 6
skrifstofuhald aðalstjórnar er í hennar umsjá. Húsvörður félagsins er Sverrir Traustason og fastráðnir bað- og klefa- verðir eru Baldur Þ. Bjarnason og Elín Elisabet Baldursdóttir. Framkvæmdir á félagssvæði Framkvæmdir á svæði félagsins voru minni en oft áður. Auk hefðbundins viðhalds og endurbóta á fasteignum og aðsöðu félagsins, innan dyra sem utan, lauk framkvæmdum við Friðrikskapellu á s.l. sumri og var hún vígð með mikilli viðhöfn hinn 25. maí s.l. af biskupi íslands,.hr. Ólafi Skúlasyni. Forseti Islands, frú Vigdís Finnbogadóttir og hr. Sigurbjörn Einarsson, biskup, voru meðal fjölmargra annarra nafntogaðra gesta viðstödd vígslu kapellunar. Fyrirhugað er að ráðast í lokafrágang á félagsaðstöðunni á efri hæð tengi- byggingarinnar á milli íþróttahúsanna á fyrri hluta næsta árs. Vegna viðkvæmrar fjárhagsstöðu félagsins hefúr ákvörðunum um næstu stórframkvæmdir á vegum félagsins, sem til stóð að taka á árinu, verið frestað um sinn. Fjármál Líkt og á fyrra starfsári hafa rekstrar- tekjur aðalstjómar dregist vemlega saman þar sem ekki hefúr reynst unnt að finna stóra leigjendur að sölum félagsins á hefðbundnum skólatima. Enn eru þó bundnar vonir við að úr þessu vandræða- ástandi kunni að rætast á næstu misserum. Þá er þess að geta að samningar við Reykjavíkurborg um hlutdeild borgarinnar í kostnaði við lokafrágang á félags- aðstöðunni á efri hæð tengibyggingar- innar á milli íþróttahúsanna eru á næsta leiti. Samkvæmt ársreikningi Vals fyrir árið 1992 varð hagnaður á reglulegri starfsemi og nam eigið fé félagsins í árslok rúmum 119 milljónum króna. Þrátt fyrir þetta er brýn nauðsyn á aðhaldi í rekstri einkum vegna minnkandi tekna af fasteignum félagsins. Sumarbúðir í Borg Að venju stóð Knattspyrnufélagið Valur fyrir íþróttaskóla á s.l. sumri undir heitinu Sumarbúðir í Borg, en þær em svo sem kunnugt er starfræktar í júní og júlí ár hvert. Þær hafa nú starfað í sex ár samfellt og unnið sér sess sem eitt vin- sælasta og best skipulagða æskulýðsstarf af þessum toga sem boðið er upp á í Reykjavík og nágrenni á hverju sumri. Námskeiðin voru samtals fímm, þar af fjögur tveggja vikna- og eitt viku- námskeið. Milli fímm og sex hundruð strákar og stelpur á aldrinum 6 til 12 ára tóku þátt í námskeiðunum. Skólastjóri var eins og árið áður Sigurður Sigþórsson. r Ymislegt Hinn 17. desember 1992 varð Ellert Sölvason eða Lolli í Val 75 ára. Af því tilefni hélt aðalstjórn Vals honum kaffisamsæti í félagsheimilinu og mættu þar íjölmargir vinir og félagar hans að fomu og nýju og ámuðu afmælisbaminu heilla. Valskonur sáu um veitingar af orð- lögðum myndarskap. A gamlársdag 1992 var árlegur íþróttamaður Vals útnefndur í fyrsta sinn. Fyrir valinu varð Valdimar Grímsson, handboltakappi, enda verða afrek hans og frami í íþróttinni á árinu 1992 lengi í minnum höfð. Þrett- ándabrenna félagsins var að venju haldin hinn 6. janúar að Hlíðarenda og tóku ljölmargir þátt í blysfor frá Hliðaskóla að Hlíðarenda. Brennustjóri var Guðmundur Sigurgeirsson. Þorrablót var haldið hinn 23. janúar og sóttu það um 240 manns. Blótstjóri var Hrólfúr Jónsson. Þann 27. mars s.l. voru Olympíufarar Vals heiðraðir sértaklega af aðalstjóm félagsins. Hvorki fleiri né færri en 15 Valsmenn fengu viðurkenningu vegna þátttöku í Olympiuleikum. Viðurkenningin var í formi penna með ígreyptu Valsmerki. Fjöldi manns tóku þátt í athöfninni og þáðu kaffiveitingar á eftir. Þótti hún takast með ágætum. Á 82 ára afmæli félagsins, hinn 11. maí, var boðið upp á hefðbundið afmælis- kaffí að Hlíðarenda og var þátttaka mjög góð. Fór vel á því að sama dag urðu Valsmenn Islandsmeistarar í meistara- flokki karla í handknattleik. I vor tók starfsfólk félagsins að sér, án endurgjalds, að mála skrifstofur þess hátt og lágt. Aðalstjórn vildi ekki láta sinn hlut í þessum efnum og málaði þess vegna gamla félagsheimilið auk þess sem hún stóð fyrir sérstökum hreingemingardegi að Hlíðarenda maí. Svokölluð “útrás” í skólana í hverfinu þar sem starfsemi félagsins er kynnt af þekktum Vals- mönnum fór fram hinn 28. október. Þetta árvissa framtak félagsins mælist vel fyrir í skólunum og er fúlltrúum þess alls vel tekið. Herrakvöldið var haldið með pompi og pragt hinn 5. nóvember s.l. Veislustjóri var séra Vigfús Þór Árnason en heiðursgestur kvöldsins og aðalræðu- maður var borgarstjórinn í Reykjavík, Markús Örn Antonsson. Jafet Ólafsson fór að venju fýrir þeim vaska hópi sem undir- bjó herrakvöldið. Hagnaði af herra- kvöldum félagsins hefur verið varið til kaupa á píanói. Nokkur fréttabréf komu út á árinu. Hinn 5. nóvember stóð félags- málaráð fyrir fundi með foreldra- og kennarafélögum Austurbæjar-, Hlíða og Æfingaskóla Kennaraháskólans um möguleika á samstarfi Vals og þessara félaga. Fundur þessi tókst með ágætum og lýstu allirþátttakendur á fundinum yfir sérstakri ánægju með þetta framták Vals og jafnframt því sem þeir lýstu yfir vilja sinum til að efna til samstarfs um hverskonar æslulýðsstarfs og nota til þess m.a. aðstöðu þá sem félagið hefúr upp á að bjóða að Hlíðarenda. “Old boys” sáu um kaup og uppsetningu á sjónvarpsdiski af miklum rausnarskap. Valskórinn var stofnaður á árinu og hefur hann stundað þrotlausar æfingar. Valsbandið starfaði af meiri elju en aldrei fyrr og keyptu m.a. hljóðkerfi er það gaf félaginu. Þá var ýmiskonar félasstarf með venjulegu sniði svo sem pílukast, bridge, skák svo ekki sé minnst á skokk og heilsuræktarhópa sem félagsmálaráð hefur haft forgöngu um að mynda. Valsblaðið Valsblaðið 44. árgangur 1992 kom út í desember í ritstjórn Antony Karls Gregory. Ritnefnd var skipuð Ragnari Ragnarssyni, Lárusi Ögmundssyni og Þorgrími Þráinssyni. VALS blaðið 6

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.