Valsblaðið - 01.05.1993, Blaðsíða 40
„Lífið hefur
verið
handbolti”
Guðmundur Hrafnkelsson
gekk í Val fyrir meiðslaveturinn
fræga. Annað tímabil hans í
félaginu var uppskeran öllu
ríkulegri og stefnan er sett á að
verja „dollurnar” í vetur.
Texti: Hanna Katrín Friðriksen
Guðmundur Hrafnkelsson, Valsmaður
og landsliðsmarkmaður í handbolta, á
góðar minningar frá síðastliðnu keppnis-
tímabili. Hann átti gott tímabil, Valsliðið
vann það sem hægt var að vinna og
rúsínan í pylsuendanum var útnefning
Guðmundar sem “Handknattleiksmaður
ársins 1993” Hann segir sjálfur að sigur-
inn í bikarúrslitaleiknum gegn Selfossi
hafi verið sérstaklega ljúfur vegna þess að
þar gerði hann fjórðu atrennuna að
bikarmeistaratitlinum, hafði áður tapað
einu sinni með Val og tvisvar gegn Val.
Guðmundur hóf handboltaferilinn 12
ára gamall með Fylki enda uppalinn Ar-
bæingur. Þar lék hann í yngri flokkunum,
framan af á línu og í homi, en slysaðist
síðan í markið þegar það var tómt á einni
æfingunni. Hann fann sig vel á milli
stanganna og hefur því verið þar síðan þó
hann eigi það til að bregða sér i eina og
eina sókn með félögum sínum þegar mikið
liggur við.
Úr Fylki lá leið Guðmundar í Breiða-
blik. Það var árið 1984 og liðið nýbúið að
vinna sér sæti í 1. deild. „Þama var ég
orðinn átján ára og kominn í unglinga-
landsliðið. ‘Eg vildi reyna mig í 1. deild-
inni auk þess sem ég var orðinn þreyttur
á aðstöðuleysinu í Arbænum. Þá var það
ekkert íþróttahús og við þurftum að sækja
æfingar út um allan bæ,” segir Guð-
mundur.
Fyrsta ár Guðmundar með Blikunum
lá leiðin beint niður í aðra deild aftur. Þar
var dvölin stutt og i næstu tilraun hafnaði
liðið í 2. sæti i 1. deildinni. ‘Arið eftir
varð árangurinn í deildinni ekki eins
góður en liðið komst úr úrslit í bikar-
keppninni. Þetta var vorið 1988 og þama
reyndi Guðmundur við titilinn í fyrsta
skipti. Það vom hins vegar Valsmenn sem
tóku bikarinn með sér heim á Hlíðarenda
og kunni Guðmundur þeim litlar þakkir
fyrir.
Guðmundur var fyrst valinn í lands-
liðshópinn sem æfði fyrir heimsmeistara-
keppnina í Sviss árið 1988. Hann fór ekki
með liðinu til Sviss, en síðan hefur hann
ekki látið sig vanta þegar íslenska lands-
liðið hefúrtekið þátt í stórmótum erlendis.
„Það var einkennilegt að sitja heima og
horfa á stjörnur handboltans á þessum
tíma eins og t.d. Frank Wahl leika í Sviss
og vera siðan nokkru síðar kominn í
VALS blaðið 40