Valsblaðið - 01.05.1993, Side 51
í MINNINGU LÁTINS
VALSMANNNS
Setning
Umbrot
Filmuvinna
Prentun
Brot og frágangur
Tökum við efni af
disklingum
til filmuútkeyrslu
Gerum verötilboö
ef óskaö er
Prenttækni
í öllum litum
KÁRSNESBRAUT 108
KÓPAVOGI
SÍMAR 44260 & 44399
FAX 45073
Einar Þór
Vilhjálmsson
Fæddur: 3. apríl 1952
Dáinn: 31. október 1993
Einar Þór Vilhjálmsson, fram-
kvæmdastjóri, lést hinn 31. október s.l.
aðeins 41 árs að aldri. Einar Þór fæddist
í Reykjavík hinn 3. apríl 1952, sonurhjón-
anna Helgu Finnbogadóttur og Vilhjálms
heitins Þórðarsonar, biffeiðastjóra.
Einar Þór var dyggur Valsmaður frá
blautu barnsbeini enda uppalinn i
Hlíðunum. Hann hófsnemma að æfa með
Val og var markmaður í öllum yngri
flokkunum í handbolta, allt upp í annan
flokk. Eins og títt var með stráka áður
fyrr, sem voru í sveit öll sumur fram á
fermingaraldur, hóf Einar á hinn bóginn
ekki að æfa fótbolta af kappi fyrr en í
þriðja flokki. Fótbolta hætti hann að
stunda er hann hóf nám í háskólanum
enda átti hann þá mjög stopular ffístundir
þar sem hann hafði þegar fyrir fjölskyldu
að sjá. Til að sjá henni farborða varð hann
að sinna allri þeirri vinnu, sem bauðst með
náminu. Fótboltinn varð því einfaldlega
að víkja.
Einar Þór var ákaflega glaðlyndur
maður, duglegur og skemmtilegur. Glað-
værð hans og eljusemi smitaði alla sem í
kringum hann voru og kynntust. Þó Einar
væri ágætur keppnismaður nálgaðist
hann boltaleiki ætíð ffemur sem leik og
skemmtan en keppni. Utan vallar sem
innan setti hann sig ekki úr færi við að
slá á létta strengi sama hvernig gekk
hveiju sinni. Því var alltaf notalegt að
vera í návist hans.
Þrátt fyrir erilsöm störf alla tíð og
hestamennskuna, sem var aðaláhugamál
Einars hin síðari árin, gleymdi hann aldrei
félaginu sínu. Það gat jafnan reitt sig á
stuðning hans bæði í orði og verki þegar
á reyndi.
Einar Þór kvæntist ungur Jóhönnu
Bjömsdóttur og eignuðust þau fjögur
mannvænleg börn, þau Birnu Karen,
Vilhjálm Andra, Þóreyju Evu og Einar
Helga.
Knattspymufélagið Valur vottar þeim
og öðrum aðstandendum og vinum sína
dýpstu samúð.
Lárus Ogmundsson
■a*
51 VALS blaðið