Valsblaðið - 01.05.1993, Qupperneq 8

Valsblaðið - 01.05.1993, Qupperneq 8
Vígsla Friðrikskapellu Friðrikskapella að Hlíðarenda var vígð 25. maí. Biskup íslands, Herra Ólafur Skúlason, annaðist vígsluna en meðal gesta var forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir. Var þetta í fyrsta skipti sem forseti íslands heimsótti Hlíðarenda. í kjölfar vigslunnar, sem fram fór á fæðingardegi séra Friðriks, var efnt til fjöl- breyttrar vígsluhátíðar m.a. tónlistar- kvölds, Friðriksvöku og guðsþjónustu. A Friðriksvöku föstudaginn 28. mai var fulltrúum KFUM og KFUK, Vals, Karlakórsins Fóstbræðra og Skáta- sambands Reykjavíkur afhent gjafabréf og tilnefnt aðila í stjórn. Fulltrúi Vals er Þorsteinn Haraldsson og er hann formaður stjórnar Friðrikskapellu. Stjórn kap- ellunnar hefur staðið fyrir Qölbreyttri dagskrá m.a. mánaðarlegum kvöld- guðsþjónustum, kyrrðarstundum í hádegi einu sinni í mánuði og tónlistarkvöldi er tileinkað var dr. Gylfa Þ. Gíslasyni. KFUK hefur hafið starfsemi í kapellunni og er þar starfandi öflug telpnadeild. Þá hefur Valskórinn söngæfmgar í Friðrikskapellu. Sannar þetta að spár forystumanna um byggingu kapellunnar um fjölbreytt félgasstarf og guðsþjónustuhald hafa ræst. Friðrikskapella var reist af samtökum um byggingu Friðrikskapellu sem stofnuð voru 1989. Stofnendur samtakanna voru vinir séra Friðriks og félagsmenn í samtökum sem séra Friðrik stofnaði. Davíð Oddsson, þá borgarstjóri, tók fyrstu skóflustunguna 24. maí 1990. Friðrikskapella rúmar 150 manns í sæti. Arkitekt er Valsmaðurinn Nikulás Ulfar Másson, verkfræðingur Þórður Ólafur Búason en aðalverktaki var Alftarós hf. Útlagður kostnaður við bygginguna var um 23 milljónir króna auk ýmissa efnisgjafa. Framkvæmdir voru fjár- magnaðar með fóstum framlögum um 80 styrktarmanna í þrjú ár auk framlags fyrir- tækja og styrkja frá Reykjavíkurborg, ríkissjóði íslands og jöfnunarsjóði kirkna. Ógreiddar byggingarkostnaður eftir vígslu kapellunnar er um 2,6 milljónir króna. Vinnur framkvæmdanefndin að lausn þess máls ásamt stjóm. Framkvæmdanefndin hefur sett sér það markmið að byggingar- skuldir verði að fullu greiddar í maí- mánuði á næsta ári. í tilefni vígslu Friðrikskapellu kom út bókin “Söngvar séra Friðriks”. I bókinni er úrval þekktustu sálma og æsku- lýðssöngva séra Friðriks. Séra Sigurður Pálsson, framkæmdastjóri Hins íslenska biblíufélags sonur Páls Sigurðssonar, eins af stofnendum Vals, hafði veg og vanda af útgáfunni ásamt Áma Sigurjónssyni. Á vígsludegi kapellunnar vom liðin 125 ár frá fæðingu séra Friðriks. Af því tilefni var séra Friðriks minnst með ýmsum hætti í fjölmiðlum. Samtök um byggingu Friðrikskapellu gáfu út myndarlegt blað sem dreift var til félagsmanna í fyrrgreindum samtökum. Bygging Friðrikskapellu er einstakt verkefni. Það sem e.t.v. er merkast við þetta er að félagsmenn úr þessum sam- tökum sem stofnuð vom um og eftir síðust aldamót skyldu taka höndum saman og heiðra minningu séra Friðriks með þessum hætti og reisa honum minnisvarða þar sem fer fram lifandi starfsem í anda stofnandans. Samtökin vora stofnuð um þetta eina verkefni sem þau hafa nú skilað í hendur þeirra félaga sem séra Friðrik stofnaði. Bygging Friðrikskapellu var ánægjulegt viðfangsefni öllum þeim sem við það fengust og samstarf einstaklinga í stjóm samtakanna og ffamkvæmdanefhd með miklum ágætum. I stjórn samtakanna um by'ggingu Friðrikskapellu áttu sæti: dr. Gylfi Þ. Gíslason formaður, Ágúst Bjarnason, Árni Sigurjónsson, Ástráður Sigursteindórsson, Helgi Elíasson, Jónas B. Jónsson, Kristinn Hallsson, Sigurbjörn Einarsson, Úlfar Þórðarson og Þórir Kr. Þórðarson. I fram- kvæmdastjóm samtakanna vora: Pétur Sveinbjamarson formaður, Bjarni Bjarnason, Jón Dalbú Hróbjartsson, Óðinn Helgi Jónsson, Ólafur Gústafsson, Sigurður Pálsson og Valgeir Ástráðsson. Ég vona að Valsmenn sæki vel þá starfsemi sem fram fer í Friðrikskapellu og leggi stjóm kapellunnar það lið sem þeir megna. Pétur Sveinbjarnarson VALS blaðið 8

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.