Valsblaðið - 01.05.1993, Qupperneq 36
VALS blaðið 36
blaut vora þeir hreinir og þurrir. Seinna
um nóttina vöknuðu stelpumar við V ATN!
En þá var “Den massive” Nonni og
strákarnir búnir að skipuleggja herferð
með vatni á stelpumar. En ætlunin var
að strákarnir myndu hlaupa inn til
stelpnanna hella á þær vatni og hlaupa
svo aftur inn í herbergi þeirr og læsa,
stelpumar hlupu náttúmlega óðar á eftir
þeim en gátu ekki svarað fyrir sig með
vatni. Þær ákváðu því að setja tannkrem
á gólfið inni hjá Nonna og Inga, og fyrir
framan dymar hjá strákunum. Þær fóm
síðan inn í herbergi en þá kom Nonni inn
á eftir þeim alveg brjálaður og fór að röfla
um að við öll hefðum verið í vatnsslag og
óþarfí að blanda efni í það. Stelpumar
svömðu fyrir sig eins og sannir Valsarar
um hvað strákarnir væru miklir
“chickenar” að hlaup inn og leyfa þeim
ekki að svara fyrir sig og gekk þá Nonni
orðlaus út. En næsta dag (lokadag
stelpnanna) var mórallinn bættur með því
að allir fóru í vatnsslag og fóru siðan
nokkrir krakkar í bæinn, en Jónsi og Hera
(frá módel 79) fóru í myndatöku fyrir
næsta Partille Cup blað, þar var Jónsi
ÝÝÝKKTUUR með kassann. Þann sama
dag þurftu stelpurnar að fara heim á
klakann. Hafrún og Sigrún kvöddu Gua-
temala gæjana sina með tár á kinn. Stelp-
umar fóm síðan i rútu að flugvellinum og
flugu heim á leið, en strákamir fóm og
fengu pening hjá Nonna og Inga, fóru
síðan á pizzeríuna og héldu upp á að
stelpumar væru farnar (nema Pétur Mr.
Safe).
Næsta dag lögðu strákamir af stað til
Danmerkur. Fyrstu dagamir i Danmörku
fóm i það að versla í Álaborg og skemmta
okkur á Biffen. Eftir þetta tók þó alvaran
við aftur.
Þann 11. júlí var mótið sett, og þann
sama dag spiluðum við fyrstu leikina á
mótinu. Við spiluðum við Pedro Nunes
frá Portúgal og unnum við leikinn 16-11,
seinna um daginn spiluðum við við BK46
Karis, en þeir unnu þetta mót í fyrra,
töpuðu við þeim leik 21-9. Næsta dag
spiluðum við við Klöfta IL og endaði sá
leikur 19-5 fyrirokkur. Seinasti leikurinn
var síðan gegn TV Sciffdorf og unnurn
við þann leik 15-7. I milliriðli lentum
við á móti norsku liðil, AK 28, sem við
unnum 15-10, síðan spiluðum við SP 72
Kraainem frá Belgíu, og unnum við þá
einnig 19-12. Seinasti leikurinn í
milliriðli var gegn sænsku liði, Karra HF,
sem við unnum með fjórum mörkum, 12-
8. I þeim leik gerðist það skondna atvik
að við fengum dómara sem var með
tveggja mínútna ræpu og þegar mest lét á
voru tveir útileikmenn og markvörður eftir
inni á vellinum og var einn leikmaður
okkar búinn að fá rauða spjaldið og einn
ónefndur þjálfari (fyrsti stafurinn er
Nonni). Jæja, nú var komin spenna í
strákana því við voruð komnir í
undanúrslitaleikinn á móti IF Hellten frá
Svíþjóð. Leikurinn byrjaði vel og í
hálfleik vorum við þremur mörkum yfir
en í seinni hálfleik minnkuðu þeir forskot
okkar í eitt mark og á seinustu mínútunum
viðbeinsbrotnaði Ingvar og spilaði ekki
meir í þessu móti. Leikurinn vannst með
einu marki, 16-15, og verður að taka fram
að Sigurgeir lokaði með markvörslu.
Þarna var allt á suðupunkti hinn
óviðjafnanlegi 4. flokkur Vals var kominn
í úrslitaleikinn í Dronninglund Cup ’93.
I fyrrihálfleik höfðum við undirtökin en í
seinni hálfleik fengum við nokkrar tveggja
mínútna brottvísanir á slæmum tíma og
misstum tökin á leiknum. Leikurinn
endaði 17-12 fyrir fínnska liðinu BK 47.
Menn voru hálfsárir eftir leikinn en hinn
eini og sanni Nonni Halldórs kom öllum
i gott skap með nokkrum vel völdnum
orðum.
Síðustu nóttina áður en halda átti heim
til Islands var lítið um svefn því klukkan
sex um morguninn kom rúta að sækja
okkur í skólann. Rútan keyrði okkur af
stað til Friðrikshafnar en á leiðinni
komumst við að því að rútubílstjórinn var
eitthvað ölvaður þvi að hann keyrði okkur
íyrst í vitlausa höfn þannig að við misstum
af ferjunni sem fór frá Friðrikshöfn til
Gautaborgar. Þetta bjargaðist þó allt því
við tókum bara næstu ferju og næstu
klukkustundir vorum við í kapp við
tímann því við þurftum að ná flugvél heim
til Islands. Sem betur fer gekk það og við
náðum fluginu heim.
Við viljum enda á því að þakka “Den
Massive Farerstjórer” Nonna og Inga og
hinum síhressu Kötu og Dúnu
“choachum” og farastjórum fyrir öfga
frábæra ferð.
4. flokkur Vals, stelpur og strákar