Valsblaðið - 01.05.1993, Blaðsíða 21

Valsblaðið - 01.05.1993, Blaðsíða 21
Valskonum er greinilega margt til lista lagt. Hér er meistaraflokkurinn að slá í gegn á Þorrablóti Vals. að hætta hið snarasta í handbolta. Þetta hafði verið eitt af mínum bestu tímabilum og því var virkilega sárt að sjá á eftir titlinum sem ég vil meina að hefði átt að vera okkar ef allar hefðu sloppið við meiðsli.” Þegar líða tók á sumarið fór Heiða að finna fyrir bata eftir meðferð hjá sjúkra- þjálfara og ákvað því að sjá til hvemig handboltinn færi með bakið. Hún fór að æfa og var með í Evrópukeppninni síðast- liðið haust. Það hafði ekki slæm áhrif á bakið, en öllu verri á annan Iíkamshluta því í síðari Evrópuleiknum trosnuðu krossbönd í vinstra hné. Heiða hefur því verið frá það sem af er, en er öll að koma til og er þegar farin að hökta með á æf- ingum og í leikjum. Það er ekki hægt að ljúka þessu spjalli við Heiðu án þess að minnast á landsliðsmálin enda hefur hún verið einn af bestu markvörðunum í kvennaboltanum undanfarin ár. „Eg hef oft verið kölluð í landsliðshópinn en á engan A-landsleik,” segir Heiða. „Bæði hef ég verið óheppin með meiðsli sem hafa oftar en ekki komið upp á þegar landsliðstamir hafa verið og eins má finna aðrar ástæður. Eg var t.d. í hópnum frá vorinu 1992 en dró mig út úr honum um áramótin á eftir. Þá var haldið mót héma heima og ég fann það greinilega að mér var bara ætlað að vera varaskeifa því Erla landsliðsþjálfari vildi fá Höllu Geirsdóttir sem spilaði í Noregi heim þó þama væri bara um æfingamót að ræða með þátttöku íslenskra liða. Eg las þarna á milli línanna að mér var ekki ætlað neitt hlutverk þama, Erla vildi bara hafa tvo markmenn á æfmgum og valdi mig þvi Halla var úti. Eg fann að ég var að detta úr formi vegna þess að á þessu tímabili æfði ég bara með landsliðinu og fékk lítið að vera með, sat yfirleitt og horfði á. í stað þess að vera áhorfandi á landsliðsæfingum valdi ég að taka á með mínu félagsliði og hef sennilega endanlega gert út um landsliðsmöguleika mína með því.” - Hvað með framtíðaráformin, stefnir hugurinn austur aftur? „Nei ertu frá þér? Eg er búin að koma mér vel fyrir hér með kærasta mínum Vilhjálmi Haukssyni og fer bara austur til að heimsækja Qölskyld- una. Hvað varðar handboltann stefni ég auðvitað að því að koma mér almennilega á fætur. Svo sér maður bara til. Það getur allt eins verið að ég verði á milli stanganna í Valsmarkinu næstu árin. Eg er jú á besta aldri.” GET- RAUNIR Á laugardagsmorgnum koma menn saman í nýja félagsheimilinu og „tippa.” Getraunanefnd undir öruggri forystu Sverris Guðmundssonar, sem ásamt Guðmundi Helga og Helga Kristjánssyni sjá með aðstoð tölvubúnaðar um að „tippið” fari rétta leið. Fjöldi þeirra sem leggur leið sína í Valsheimilið á laugardögum í þeim tilgangi að „tippa” fer sífellt vaxandi. Menn hittast þama yfir kaffibolla og meðlæti til að spjalla saman, spá og spekúlera og hafa það gott. Formaður Getraunanefndar 1993 er Sverrir Guðmundsson. 21 VALS blaðið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.