Valsblaðið - 01.05.1993, Page 49
Lesið fyrir próf í vélaverkfræðinni.
var ótrúlegra spennandi úrslitakeppni og
ólíklegustu menn villtust niður í
Valsheimili til að spá og spekúlera á
meðan á henni stóð. Skyndilega fengu
allir Valsmenn áhuga á körfubolta. Það
er best að gefa Ragnari orðið þegar þessi
tími er rifjaður upp: „Samstaðan í liðinu
var hreint ótrúleg og menn voru tilbúnir
til þess að fóma öllu fyrir liðsheildina.
Við vorum tólf manna hópur og þeir sem
vom fyrir utan liðið hverju sinni voru
alveg jafnmikill hluti af liðsheildinni og
aðrir. “
„Þegar er engin spurning að það
breyttist margt eftir þessa úrslitakeppni.
Þarna voru flestir leikmenn Vals að
kynnast því í fyrsta skipti hvað það er að
vera í toppbaráttunni og finna lyktina af
titlum. Viðhorfið hjá manni breytist eftir
svona reynslu. Ég á persónulega mjög
erfitt með að sætta mig við gengið nú eftir
að hafa kynnst hinni hliðinni. Eftir nokkra
tapleiki í röð fyrr í vetur var ég farinn að
eiga erfitt með svefn.”
Þrátt fyrir að Valsliðið hafi átt frekar
misjöfnu gengi að fagna það sem af er
vetrar hefur Ragnar firndið sig vel og átt
góða leiki og glatt margan áhorfandann
með fallegum 3ja stiga körfum. Hann segir
sjálfur að þarna sé aðeins um að
framlengingu frá síðasta keppnistímabili
þar sem hann átti góðan lokasprett og
þakkar það því að hafa sloppið við meiðsli
sem hafa hrjáð hann undanfarin ár. „Ég
var fyrst skorinn upp við nárameiðslum
sumarið 1991. Þá hafði ég verið frá stóran
hluta tímabilsins áður og var fastagestur
hjá sjúkraþjálfurum. Þær heimsóknir
héldu áfram veturinn eftir þar sem
meiðslin tóku sig upp og ég fór aftur í
uppskurð um sumarið. Ég var nokkum
tíma að ná mér alveg góðum og var alveg
við það að gefast upp á þettu. Sem
lokaúrræði ákvað ég að fara enn einu sinni
í sprautumeðferð sem til þessa hafði ekki
gert mikið gagn. í þetta skipti kom hún
vel út þannig að mér hefur líklega ekki
verið ætlað að hætta strax.”
„Ég var kominn á gott skrið undir
lok tímabilsins, enda aldrei æft betur, en
við komumst ekki í úrslitakeppnina. Eftir
góða byrjun þar sem liðið mætti stútfullt
af sjálfstrausti í hvem leik fór að halla
undan fæti og liðið klúðraði hverjum
leiknum á fætur öðm. Við höfðum reyndar
misst lykilleikmenn eins og Tomma
Holton fyrir mótið og þá meiddist Frank
um miðjan veturinn og lék ekki meira
með.
Ragnar var mættur i lyftingar daginn
eftir síðasta leik í íslandsmótinu, ákveðinn
í að nýta sumarið vel þar sem enginn upp-
skurður var á dagskrá. „Ég var ákveðinn
í að byggja mig vel upp. Það lá strax fyrir
að einhverjar breytingar yrðu á liðinu og
ég sá fram á að þurfa að taka á mig meiri
ábyrgð en áður.”
- Þú hefur samt kannski ekki búist
við því að verða gamli maðurinn í liðinu
i vetur? „Nei alls ekki enda lá það ekki
fyrir fyrr en seint í haust. Það var mikil
óvissa sem rikti um sumarið. Pétur Guð-
mundsson hætti við þjálfunina og þegar
gengið var frá samningi við Frank var
aðeins vika í fyrsta leik. Samt sem áður
bjóst hann við því að menn eins og
Matthías Magnússon og Brynjar Harðar-
son yrðu með og vonaðist jafnvel eftir
Símoni. Það voru sem sagt að eiga sér stað
miklar breytingar fram eftir öllu og það
er ekkert grín að undirbúa lið fyrir mót
þegar svo er.”
- En svo var það þetta með 3ja stiga
körfumar? „Það er náttúrulega ljóst að ég
treð ekki boltanum í körfuna. Valsliðið
leikur öðruvísi bolta en hin liðið því við
erum svo litlir. Við skjótum þess vegna
mikið fyrir utan, stundum gengur það vel
og stundum ekki. Ég æfði persónulega
þessar 3ja stiga skot mikið þegar ég var
yngri. Ég hef alltaf skorað tiltölulega
mikið úr slíkum skotum en nú er skorið
orðið jafnara hjá mér en áður. Ég er orðinn
stöðugri leikmaður og það er ekki verra
að Frank leitar mikið að mér.”
Ragnar er nú á lokaári í véla-
verkfræði við Háskóla Islands. Hann
stefnir á framhaldsnám erlendis en hefur
hug á að leika enn eitt tímabil með Val
eftir þennan vetur áður en af því verður.
„Valsliðið er mjög ungt og margir af ungu
strákunum eru mjög efnilegir. Það eru
margir hættir frá því i fyrra og liðið er
ekki líklegt til afreka í vetur þó við gerum
Lítill og dúllulegur. Þarna er Ragnar
ekki enn búinn að ákveða hvort hann
ætlar að verða körfuboltamaður,
knattspyrnumaður eða
handboltamaður en hann ætlar í Val.
okkur enn vonir um að komast í
úrslitakeppnina. Draumurinn er hins
vegar að sjálfsögðu að verða íslands-
49 VALS blaðið