Valsblaðið - 01.05.1993, Síða 15
Fj ölsky I dugaman
I bígerð er ýmiss konar samstarf við
foreldrafélögin í grunnskólum í
nágrenninu og við aðra aðila sem starfa
að æskulýðs- og tómstundamálum í
hverfunum næst Hlíðarenda. Vonast er til
þess að sem flest börn taki ásamt
foreldrum sínum þátt í nokkrum
skemmtilegum viðburðum á Hlíðarenda
og í nágrenni á næstu mánuðum: Einnig
eru allir Valsmenn hvar sem þeir búa
hvattir til að taka þátt með fjölskyldum
sínum.
Þrettándabrenna verður að venju 6.
janúar. Blysfor verður frá Hlíðaskóla að
brennunni, sungið verðiu- og dansað við
bálköstinn og í lokin verður
flugeldasýning. Þátttakendur eru hvattir
til þess að klæðast grímubúningum eða
öðrum skrautlegum eða
skrýtnum klæðum og
bera grímur eða mála
sig í ffaman.
Gönímdagar verða
haldnir þegar vorar,
gjaman í samstarfí við
foreldrafélög í
grunnskólunum. Þá
verður gengið frá
Hlíðarenda um Öskju-
hlíðina og út í Naut-
hólsvík og á eftir verða
veitingar, kakó og
brauðmeti, bomar fram
í nýja félagsheimilinu.
Valshlaupið 1994
verður laugardaginn
22. maí kl. 14:00. Það
er skipulagt við hæfi Frá Lollapotts
Qölskyldna fremur en
afrekshlaupara, því að vegalengdir verða
2 og 4 kílómetrar og ekki verður um
nákvæma tímatöku að ræða heldur notast
við stóra markklukku. Leitast verður við
að skapa hlaupinu skemmtilega umgjörð
og m.a. verða veitt verðlaun fyrir bestu
hópbúninga, besta þátttöku bekkjardeilda,
fjölmennustu fjöiskylduna, hæstan
samanlagðan aldur fjölskyldu (afi og
amma mega teljast með) o.fl. Eftir hlaupið
verður boðið upp á veitingar.
Valskórinn
Á liðnu hausti gekkst félagsmálaráð
fyrir stofnun Valskórsins, en það er
blandaður kór sem hefur það að markmiði
að gefa áhugamönnum um kórsöng kost
á að æfa og syngja saman einu sinni í viku
undir stjórn góðs söngstjóra. Nú eru
félagar famir að nálgast 30, tæplega 20
konur og 10 karlar. Kórinn söng í fyrsta
skipti fyrir stuðningsmenn Vals á fundi
Lollapottsfélaga 7. des. sl. og kom í fyrsta
skipti fram opinberlega á aðventukvöldi í
Friðrikskapellu 15. des. sl.
Eftir áramótin verður enn hægt að bæta
við nokkrum kórfélögum af báðum
kynjum og er áhugafólk um kórsöng hvatt
til að koma á æfíngu og spá í málið.
Kórinn æfir einu sinni í viku, á
fimmtudagskvöldum kl. 20-22 í Friðriks-
kapellu. Söngstjóri er Gylfi Gunnarsson
tónlistarkennari og efnisskráin er þegar
orðin fjölbreytt, íslensk og erlend
dægurlög, ættjarðarlög og negrasálmar,
auk þess sem jólalög voru æfð fyrir
aðventukvöldið.
kvöldi
Göngu-og skokkhópur
I vetrarbyrjun hljóp af stokkunum
trimmhópur sem stundar göngur og skokk
á Öskjuhlíðarsvæðinu. Hópurinn hittist
þrisvar i viku á Hlíðarenda, kl. 18:00 á
mánudögum og miðvikudögum og kl.
11:00 á laugardögum. Það sem af er vetri
hefur yfirleitt viðrað prýðilega til útivistar
og aldrei hefur fallið niður æfmgadagur,
þótt þátttakan hafi að vísu verið litil þegar
fárviðrin gengu yfir í nóvember. Eftir að
kólna tók í veðri niður fyrir frostmark
hefur í lok hverrar ferðar verið farið inn í
heilsuræktarsalinn til að gera teygju-
æfingar og þar er einnig unnt að stunda
aflþjálfún í líkamsræktartækjum.
Nú er komin ágæt reynsla á starfið og
því er ástæða til að hvetja Valsmenn,
stuðningsmenn og aðra sem þetta lesa, til
að taka þátt í þessari heilsurækt. Hrjósi
mönnum hugur við að ganga eða skokka
úti um hávetur þá geta þeir auðvitað beðið
til vors og þá má búast við að fj'ölgi
verulega í hópnum. En reynslan hefúr sýnt
að unnt er að stunda útivist í nánast hvaða
veðri sem er ef fólk klæðir sig rétt og því
er ekki eftir neinu að bíða, heldur full
ástæða til að drifa sig sem fyrst af stað
eftir hátiðamar.
Yfir háveturinn er farið rólega i
sakimar en þó leitast við að veita góða
hreyfingu og halda úthaldinu við. En
þegar fer að hlýna í veðri verður settur
kraftur í æfingarnar, bæði fyrir þá sem
vilja ganga og hina sem skokka. Leitast
verður við að miðla
leiðbeiningum og
gagnlegum upplýs-
ingum til þátttakenda,
s.s. tillögum að þjálf-
unaráætlunum fyrir
byrjendur og lengra
komna, yfirliti yfir
teygjuæfingar, ábend-
ingum um mataræði,
svo og korti af
Hlíðarenda- og Öskju-
hlíðarsvæðinu með
merktum göngu- og
hlaupaleiðum og
áætluðum vegalengd-
um.
Látið frá
ykkur heyra
í félagsmálaráði starfa þeir Dýri Guð-
mundsson, Ómar Sigurðsson, Óttar Felix
Hauksson, Gunnar Svavarsson og Stefán
Halldórsson, auk þess sem ýmsir félagar
Valsbandsins og úr öðmm nefndum og
ráðum Vals hafa lagt sitt af mörkum með
ýmsum hætti. Valsmenn og velunnarar em
hvattir til að koma góðum ábendingum
og hugmyndum á ffamfæri við ráðsliða.
Stefán Halldórsson