Valsblaðið - 01.05.1993, Qupperneq 31

Valsblaðið - 01.05.1993, Qupperneq 31
að gera garðinn frægan með Val hafi skapast ákveðin tengsl milli Víkings Ólafsvík og Vals, sem hafa gert það að verkum að ungir leikmenn fyrir vestan líta til Vals sem síns stóra félags, fylgjast með framgangi hans og hafa jafnvel mætt á æfingar á Hlíðarenda. voru þá þrettán ár síðan hann hafði unnist í þessum flokki. Eg var valinn meistaraflokkshópinn á miðárinu í 2. flokki þannig að ég stoppaði frekar stutt við í 2. flokki en lék þó vel- flesta leikina, engu að siður. er óskastaðan mín þar sem ég get tekið fullan þátt í öllum aðgerðum liðsins. Síðasta sumar lék ég einnig til bráðabirgða stöðu frispilara í vöm, og er það staða sem ég gæti vel hugsað mér að leika eftir nokkur ár. I yngri flokkunum spilaði ég alltaf á miðjunni, nema þegar ég spilaði “upp fyrir mig” þá lék ég í framlínunni. Hin síðari ár hefur svo knattspymuáhuginn heldur dofnað fyrir vestan, og áherslan hefur t.d. færst yfir á körfuboltann. Næsta sumar verður vígður nýr grasvöllur sem verður vonandi lyftistöng fyrir knattspymuna. “Ungur leikmaður með Víkingi Ólafsvík.” Yngri flokkarinir hjá Val Eg kom til liðs við Val 1986, á síðasta ári i 3 flokki. Þá var þjálfari Kristján Þorvaldz, mjög góður þjálfari. Við komumst í úrslit þetta árið, en náðum ekki að klára dæmið og enduðum í 5 sæti. Þá tók við annar flokkurinn og hafði ég þar einnig mjög góða þjálfara, þá Hörð Hilmarsson og Hauk Hafsteinsson og á síðasta ári mínu í 2. flokki skiluðum við íslandsmeistaratitlinum á Hlíðarenda, og Meistaraflokkurinn Eins og áður sagði lék ég mína fyrstu meistaraflokksleiki árið 1988, vann mér fast sæti þar 1990 og hef leikið allar götur siðan. Alls em þetta því 6 leiktíðir. Fyrsti þjálfari minn þar var Hörður Helgason, sem Guðmundur Þorbjömsson síðan leysti af. Á þeim stutta tíma sem Guðmundur þjálfaði, sýndi hann að hann var mjög athyglisverður þjálfari sem ég held að félagið eigi að leita aftur til og ná inn í félagsstarfið. Þá var Ingi Bjöm í 3 ár og síðan tók Kristinn Bjömsson við í sumar. Á þessum tíma höfum við unnið bikarkeppnina í ljórgang, 1988, 1990,1991 og 1992. Mér hefur fundist það hafa verið vandamál undanfarin ár, að skapa rétta vinnumóralinn í liðinu fyrir leiki, þ.e. að fá allt liðið til að leggjast á sömu sveifina til að ná í sigur. Það geta verið ýmsar ástæður fyrir þessu, s.s. samsetning hópsins eða eitthvað annað, en þetta er sá þáttur sem mér fmnst að við getum lagað og erum að gera þessa stundina. Mér finnst árangur liðsins í Islandsmóti ekki hafa varið nógu góður undanfarin ár, og vil ég þar kenna um undirbúningi leikmanna og hugarfari í leik. Úr þvi við getum unnið Bikarkeppnina getum við alveg eins unnið Islandsmótið. Það er sá bikar sem okkur vantar hér á Hlíðarenda, Að vinna hann yrði mikið lyftistöng fyrir allt starfið, og myndi hvetja leikmenn til frekari afreka. Leikmaðurinn ég Ég byrjaði að leika úti á kanti, en með auknum líkamsþroska og reynslu hef ég fært mig inn á miðjuna og get þannig tekið virkari þátt í öllum leik liðsins, bæði í sóknaruppbyggingu og varnarleik. þetta Meðal galla minna sem leikmanns má nefna að ég er ekki nógu mikill egóisti, sem kemur fram í þvi að ég mætti taka oftar af skarið en ég geri og spila beittara. Þá er ég ekki nógu fljótur. Þá finnst mér mig vanta enn meiri líkamsstyrk. Kristinn Bjömsson hefur þó komið meira inn á þennan þátt og og er með lyftingaræfíngar ekki bara á undir- búningstímabilinu, heldur líka leiktíðinni sjálfri og tel ég það af hinu góða. Eg finn sjálfur stóran mun á mér við að lyfta og vera að styrkjast. Það minnkar mjög meiðslaáhættu og almennt úthald eykst til muna. Þetta er þáttur sem ég tel að hafí verið vanræktur fram til þessa en er að breytast. Það er mjög áberandi þegar við spilum við erlend lið, hvað andstæð- ingamir em oft miklu sterkari líkamlega sem gerir það að verkum að þeir „labba yfír okkur”. Aukin hreysti kemur ekki niður á t.d.leikni eða hraða en eykur vemlega úthald eins og ég sagði áðan. Eg held að mínir kostir séu þeir að ég er duglegur, og ég legg mig allan fram í leikjum, er drífandi, hef góða alhliða tækni get notað báða fætur til að spyma og góður skallamaður. “Bræðurnir Steinar og Ólafur á unga aidri, að sjálfsögðu með bolta.” 31 VALS blaðið

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.