Valsblaðið - 01.05.1998, Page 7
STARFIÐ ER MARGT
Frábær
árangur
yngri flokka
Knattspymudeild Vals ákvað haustið
1997 að ráða Kristinn Björnsson sem
þjálfara meistaraflokks karla til loka
ársins 2000 og á samningstímanum er
stefnt að því að lyfta liðinu upp að hlið
þeirra bestu. Fyrir keppnistímabilið
1998 urðu talsverðar mannabreytingar.
ívar Ingimarsson fór til ÍBV, Arnar
Hrafn Jóhannsson sneri aftur til Vík-
ings, Tómas Ingason fór í Stjömuna og
Hörður Magnússon fór á ný til liðs við
FH. Atli Helgason varð að leggja skóna
á hilluna vegna meiðsla, Gunnar Guð-
mundsson fór í Stjömuna, Jón Ingi
Ingimarsson fór í Breiðablik. Nokkrir
leikmenn gengu til liðs við Val fyrir
tímabilið 1998, Ingólfur Rúnar Ing-
ólfsson frá Stjörnunni, Hörður Már
Magnússon frá Leiftri, Ólafur Stígs-
son úr Fylki, Jón Þorgrímur Stefáns-
son HK og Vilhjálmur Vilhjálmsson
úr Fylki.
Gengi liðsins í sumar olli ákveðnum
vonbrigðum þrátt fyrir gott gengi fram-
Reykjavíkurmeistarar og bikarmeistarar 2.fl. karla.
Efri röð f.v. Þorleifur K. Valdimarsson form knattspyrnudeildar, Ólafur P.
Snorrason, Kristinn S. Jónsson, Grímur Garðarsson, Ágúst Guðmundsson, Jón E.
Hallson, Guðmundur Kristjánsson, Elvar L. Guðjónsson, Jóhannes H. Sigurðsson,
Gísli Þ. Guðmundsson, Stefán H. Jónsson, Þorlákur Árnason þjálfari, Reynir
Vignir form. Vals.
Neðri röð f.v. Matthías Guðmundsson, Helgi M. Jónsson, Kristinn G. Guðmunds-
son, Jóhann Hreiðarsson fyrirliði, Henry Þ. Reynisson, Benedikt B. Hinriksson,
Steinarr Guðmundsson, Sigurður Sæberg. Mynd: Þ.Ó
Þorleifur K. Valdimarsson for-
maður knattspyrnudeildar
an af og fljótlega var ljóst að þetta yrði
eitt erfiðasta ár okkar Valsmanna í lang-
an tíma. En síðan kom ljósið í myrkr-
inu, gamall draumur okkar Valsmanna
rættist þegar einn langbesti atvinnu-
maður okkar íslendinga til margra ára,
Arnór Guðjohnsen gekk í raðir Vals-
manna í lok júnímánaðar. Við komu
Amórs breyttist hugarfar leikmanna og
stuðningsmenn okkar sáu til sólar á ný
og koma Amórs gaf íslenskri knattspyr-
nu miklu meira en nokkurn mann
grunaði. I lok júlí komu síðan til liðs
við okkur tveir Englendingar; Mark
Ward fyrrum leikmaður Everton'og
Richard Burgess leikmaður Stoke.
Þessi ákvörðun var tekin í miklum flýti
og er dæmi um hluti sem ganga ekki
upp og stjóm knattspymudeildar Vals
lærði mikið af þessu ævintýri og mun
ekki endurtaka það í framtíðinni.
Síðasta tímabil endaði með því að liðið
lenti í 8.sæti og jafnaði þar með lakasta
árangur liðsins frá árinu á undan. Það er
alveg ljóst að forráðamenn knattspyr-
nudeildar eru orðnir langþreyttir á
erfiðu gengi liðsins og bindum við mik-
lar vonir við það að ungir leikmenn
okkar muni á næstu leiktíð öðlast þá
reynslu sem fylgir því að vera meðal
þeirra bestu. Knattspymudeild Vals
telur að þjálfarinn Kristinn Björnsson
og aðstoðarmaður hans Arnór
Guðjohnsen muni leiða okkur til sigurs
á komandi árum.
Knattspymudeild Vals hefur lagt allt
kapp á að halda niðri kostnaði og hefur
Valsblaðið 50 ára 7