Valsblaðið - 01.05.1998, Qupperneq 10

Valsblaðið - 01.05.1998, Qupperneq 10
Kristinn Björnsson þjálfari mfl. og Helgi Kristjánsson dómari. MyndÞ.Ó. 5. flokkur karla Flokkurinn spilaði í b-riðli í sumar og var hársbreidd frá því að komast í úr- slitakeppnina. Á Essómótinu á Akur- eyri var árangurinn ekki í samræmi við getu þó að tilþrif, sem allir vita að strákamir geta sýnt, hafi skotið upp kollinum öðru hvoru. í Haustmótinu gekk vel og endaði liðið í 2.sæti. Það var óvenju mikið um forföll í sumar og háði það liðinu stundum en það býr mikið í þessum strákum og vonandi tekst liðinu að endurheimta sæti sitt í a- riðli næsta sumar. Þjálfari var Ágúst Haraldsson og honum dl aðstoðar var Ami Viðar Þórarinsson. Besti leikmaður: Torfi Geir Hilmarsson. Mestu ffamfarir: Einar Óli Guðmundsson. Besta ástundun: Helgi Þormar Þorbjömssoa 5. flokkur kvenna Þessi flokkur samanstóð af 15-20 mjög áhugasömum stúlkum. Ekki unnust neinir titlar á árinu en flestar stúlkumar voru á yngra ári. En það sem vóg á móti voru framfarimar hjá stúlkunum, en þær voru mjög miklar. Flokkurinn tók þátt í mörgum mótum í sumar en þau helstu voru; íslandsmótið, Reykja- víkurmótið og Gull- og Silfurmótið og pæjumótið i Vestmannaeyjum. Þjálfari flokksins var Berglind Jónsdóttir. Besti leikmaður: Björg Magnea Ólafs. Mestu ífamfarir: Eva Dögg Eggertsdóttir. Besta ástundun: Rósa Hauksdóttir. 6. flokkur karla Hápunktur tímabilsins var hið geysi- vinsæla Shell-mót í Vestmannaeyjum. A-liðið hafnaði í 3-4 sæti, B-liðið í 5. sæti en C-liðið neðar þrátt fyrir tvo sigra síðasta daginn. Liðið komst ekki í úrslit á Pollamóti K.S.Í. en á Pepsí- mótinu á Akranesi lentu bæði A- og B- liðið í 2.sæti. I flokknum eru margir af framtíðarleikmönnum Vals og ef strák- amir eru duglegir að æfa þá þurfa þeir ekki að kvíða framtíðinni. Þjálfari var Ágúst Haraldsson og honum til aðstoðar var Árni Viðar Þórarinsson. Besti leikmaður: Anton Rúnarsson. Mestu framfarir. Brynjar Kristjánsson. Besta ástundun: Árni Heiðar Geirsson. 6. flokkur kvenna Flokkurinn samanstóð af 12 stúlkum. Stelpumar eru að byrja í knattspymu þannig að megináhersla var lögð á að kenna þeim grunntækni. Framfarir hafa verið miklar í sumar. Flokkurinn tók þátt í Reykjavíkurmótinu, Gull og Silfurmótinu og Nóatúnsmótinu. Þjálfari flokksins var Berglind Jónsdóttir. Besti leikmaður: Sigyn Jónsdóttir. Mestu framfarir: Rakel Haraldsdóttir. Besta ástundun: Heiða Másdóttir. 7. flokkur karla Það voru 35-40 strákar á æfíngum á síðasta ári og var mæting að öllu jöfnu mjög góð. Flokkurinn fór á tvö stór mót; Vormót Víkings og Lottómót á Akranesi og auk þess tók flokkurinn þátt í mörgum minni mótum. Strákarnir stóðu sig mjög vel og voru félaginu til mikils sóma bæði innan sem utan vallar. I flokknum eru strákar sem eru að stíga sín fyrstu skref knattspymunni og tóku strákamir allir miklum framförum enda er það aðalatriðið í 7. flokki. Þjálfari var Sigurður Sæberg og honum til aðstoðar var Helgi Már Jónsson. Mestar framfarir: Alexandre Tschelitchv. Besta ástundun: Anton Ingi Rúnarsson. Islands - Reykjavíkur - og haustmeistarar í 4. fl. kvenna. Efri röð f.v. Elísabet Gunnarsdóttir þjálfari, Dóra M. Lárusdóttir, Jóhanna L. Brynjólfsdóttir, Edda G. Sverrisdóttir, Sigríður B. Sigurbergsdóttir, Hildur Einarsdóttir, Rakel Adolphsdóttir, Lilja Svavarsdóttir, Regína M. Árnadóttir, Sigrún Þorsteinsdóttir, Ósk Stefánsdóttir, Chrieta H. Lehmann, Rakel Logadóttir aðstoðarþjálfari. Neðri röð f.v. íris B. Jóhannsdóttir, Valgerður S. Kristjánsdóttir, Sandra Gísladóttir, Dóra Stefánsdóttir, Ragn E. Arnórsdóttir, Björg Á. Þórðardóttir, Freyja E. Logadóttir, Helga Harðardóttir, Hjördís Harðardóttir Liggjandi f.v. Rúna S. Rafnsdóttir, Signý H. Guðnadóttir, Erika L. Elvarsdóttir 10 Valsblaðið 50 ára

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.