Valsblaðið - 01.05.1998, Qupperneq 13

Valsblaðið - 01.05.1998, Qupperneq 13
www.valur.is En við sáum að okkur og við endur- skoðuðum hug okkar en ein af helstu hugmyndum Borisar var að gefa ungum leikmönnum tækifæri. Auðvitað er ekki alltaf hægt að gefa þeim öllum tækifæri því oft er það reynslan sem skilar stig- unum en það kemur alltaf næsti leikur. Þeir sem eru í 2. og 3. flokki í dag hafa alist upp við það að leikmenn ur þess- um flokkum eru teknir inn í meistara- flokkinn og sú stefna okkar að vera með lið skipað „heimamönnum" hefur skil- að okkur mikilli velgegni. Það sem erlendir leikmenn hafa fram yfir ung- lingana okkar er reynsla, en það fá leik- menn með því að spila þess vegna látum við okkar ungu leikmenn spila til þess að þeir öðlist reynslu og verði betri. Við treystum strákunum okkar. En hvað með framtíðina, er sigur- gangan endalaus? Það byggist allt á því hvemig er staðið að hlutunum, þessi sigurganga hefur staðið yfir í 10-12 ár, af hverju ætti hún ekki eftir að standa yfir næstu 10 árin. Þetta byggist númer eitt á góðum þjálf- umm, sérstaklega hjá yngri flokkunum þannig að leikmennimir komi fullmó- taður upp í meistaraflokk. Góður þjálf- ari er að mínu mati sá sem hefur góða þekkingu á íþróttinni og er góður stjór- nandi og skipuleggjari. Að lokum, hverju viltu breyta hjá Val? Það er hægt að laga ýmislegt hjá Val en að mínu mati er stærsta verkefnið að koma knattspymunni aftur á þann sess sem hún var í. Félagið heitir Knatt- spyrnufélagið Valur og þó að hand- boltinn hafi haldið félaginu uppi síðastliðin ár þá þurfum við að efla fót- boltann. í fyrsta lagi þá þarf fótboltinn að horfa aðeins á hvað handboltinn hefur verið að gera. Við þurfum að eyða meiri peningum í unglingastarfið og ég vil sjá einn þjálfara sem ber ábyrgð á yngriflokkaþjálfuninni og er í fullu starfi við að þjálfa unga knattspymu- menn. í framhaldi af þessu þurfum við að bæta aðstöðuna fyrir knattspyrnuna þannig að krakkar geti komið hingað hvenær sem er og sparkað. Knattspymufélagið Valur hefur haldið úti heimasíðu sinni í 2 ár og þar er hægt að sjá allar æfingatöflur félgasins, úrslit leikja í meistaraflokkum félagsins og næstu leiki. Gaman væri að á síðunni væru úrslit leikja í yngri flokkum félagsins en til þess að það megi verða verða þjálfarar í yngri flokkunum að koma úrslitum til umsjónarmanns síðunnar svo hægt sé að setja þau inn. Reynt hefur verið að setja fréttir úr félaginu á síðuna en það hefur ekki verið nokkur áhugi hjá Valsmönnum að koma með fréttir á síðuna. Hefur það valdið okkur sem áhuga höfum á þvi að gera Valssíðuna að betri og áhuga- verðari síðu töluverðum vonbrigðum. Gaman væri nú á nýju ári að formenn deilda, þjálfarar og umsjónarmenn flok- ka sendu efni sem hægt væri að setja á síðuna, þannig að Valsmenn út um allan heim geti fylgst með hvað er að gerast hjá Val. Hægt er að koma með myndir t.d. af liðum sem ynnu einhverja titla. Einnig væri mjög gott fyrir þá sem að síðunni standa að fá gagnrýni um útlit, efni, hvað vantar á síðuna og fleira. Umsjónarmaður síðunnar er Árni Gunnar Ragnarsson og netfang hens er arnigunnar @ - islandia.is einnig er hægt að koma efni á skrifstofu Vals valur@valur.is sem mun þá koma því til umsjónar- manns. Umsjónarmaður Valssíðunnar að störfum við að setja inn úrslit síðustu leikja. Valsblaðið 50 ára 13

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.