Valsblaðið - 01.05.1998, Síða 18

Valsblaðið - 01.05.1998, Síða 18
Fulltrúaráð Vals ^ÁLXmÁ6si6$4' \]áLfy Ólafur Gústafsson Á aðalfundi Vals 13. nóvember 1945 var samþykkt að stofna 9 manna full- trúaráð innan félagsins. Skyldi ráðið vera ráðgefandi félagsstjórninni á hverjum tíma og henni til aðstoðar í meiriháttar málum. Aðal hvatamaður að stofnun fulltrúaráðsins var hinn ötuli Valsmaður Frímann Helgason, fyrr- verandi formaður félagsins, ritstjóri Valsblaðsins til margra ára og bak- vörður í hinni "frægu Valsvöm" á 4. áratugnum. Fyrsti formaður ráðsins var Forsíðan á hinum nýja kynningar- bæklingi Vals Sveinn Zoega, fyrrverandi formaður Vals og heiðursfélagi. Við stofnun fulltrúaráðsins var lögum Vals breytt, m.a. þannig að stjórn félagsins var skylt að leita álits ráðsins um öll "meiriháttar mál". í fulltrúaráðið völdust þegar í upphafi "eldri" Valsmenn sem höfðu verið virkir þátt- takendur í íþróttastarfinu og bám hag félagsins fyrir brjósti og voru áfram tilbúnir til að láta gott af sér leiða í þágu Vals. Þá varð fulltrúaráðið strax í byrjun góður vett- vangur fyrir þessa Vals- menn til að hittast, bera saman bækur sínar og fylg- jast með gangi mála innan Vals. Á árinu 1957 voru fulltrúa- ráðinu settar sérstakar starfsreglur og ráðið opn- að meira fyrir félagsmenn, er starfað höfðu vel fyrir félagið og vildu gera áfram á nýjum vettvangi, í áranna rás tóku starf- sreglurnar nokkrum breytingum og hor- fið var frá því, að skylda aðalstjóm félagsins til að bera "meiriháttar mál" undir fulltrúaráðið. Var það skynsamleg breyting, því fulltrúaráðið á ekki að vera eins konar yfirstjóm í félaginu. Fljótlega fór starfsemi fulltrúaráðsins að berast inn á þær brautir að standa fyrir ákveðnum verkefnum í þágu Vals, sem ráðið tók fyrir eigin fmmkvæði eða vegna beiðni aðalstjórnar félagsins. Sem dæmi um slík verkefni má nefna gerð kvikmyndar um fyrstu árin í sögu Vals - verkefni sem verðugt væri að halda áfram með. Af nýlegri verkefnum má nefna, að á árinu 1996 lét full- trúaráðið, að frumkvæði Péturs Sveinbjarnarsonar, fyrrverandi for- manns Vals, setja upp söguskilti um Hlíðarenda, sem stendur við gamla íbúðarhúsið. Nýjasta verkefni full- trúaráðsins var síðan útgáfa kynningar- rits um Val í ritstjórn Þorgríms Þráinssonar, rithöfundar og Valsmanns, sem afhent var aðalstjórn á aðalfundi félagsins s.l. vor í 6000 eintaka upplagi. Tilgangur stjómar fulltrúaráðsins með þessari útgáfu var að gera vandað, aðgengilegt og vel myndskreytt rit, sem segði frá uppmna og merkilegri sögu Vals, glæstum sigmm félagsins og hvað það býður ungu fólki í dag. Kynningarrit, sem félagið gæti m.a. afhent unga fólkinu sem æfir hjá félag- Söguskilti um Hlíðarenda. inu, bömunum sem koma í sumarbúðir og íþróttaskóla Vals, bamafjölskyldum í nærliggjandi hverfum og fyrirtækjum, sem styðja og styrkja félagið. í fulltrúaráðinu í dag er 81 meðlimur, Nýir félagar eru teknir í ráðið á aðal- fundi þess að tillögu einhvers full- trúaráðsmeðlims eða aðalstjórnar. Markmið ráðsins nú er að vera aðal- stjóm til ráðgjafar og stuðnings, að taka að sér einstök verkefni félaginu til framdráttar og að vera vettvangur "eldri" Valsmanna til að hittast. Með þessi markmið að leiðarljósi getur ráðið dafnað og gert félaginu gagn. 18 Valsblaðið 50 ára

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.