Valsblaðið - 01.05.1998, Qupperneq 29

Valsblaðið - 01.05.1998, Qupperneq 29
Fræknir kappar hita upp í Noregsför Vals lokað á ákveðnar skoðanir sem öllum er hollt að hlusta á - burtséð frá því hvort tekið er mark á þeim eða ekki. Það er yfirleitt þannig að þeir menn, sem hafa setið í stjóm, eru endurkjömir því þeir hafa ákveðið forskot. Vonandi vegna þess að þeir hafa verið að standa sig vel.“ -- Er það eins í þessu og pólitíkinni, að menn eru að smala atkvæðum? „Ekki í mínu tilviki en auðvitað hef ég heyrt það. Félögin þurfa sjálf að koma með tillögur að stjómarmönnum og því er engum um að kenna nema þeim sjálf- um ef þeir eru ósáttir við þá sem em í stjórninni. Það hlýtur að tíðkast að menn klóri hver öðmm á bakinu og sammælist um að veita ákveðnum brautargengi. Það er félagarígur í þessu eins og öðm. En það má vel vera að félögin ættu að reyna að koma yngri og ferskari mönnum, sem em nýhættir að spila, inn í stjóm KSI.“ -- Var það of stór biti fyrir KSÍ að taka að sér rekstur Laugardals- vallar? „Þótt ég hafi verið efíns á tímabili er ég sannfærður um að þetta hafi verið rétt ákvörðun. Þetta var þjóðþrifamál og vel stutt af borgaryfirvöldum. Við tókum einnig þá stefnu að færa skrifstofumar undir stúkuna og ég tel að það sé til mikilli bóta.“ -- Erum við, undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar, að eignast okkar sterk- asta landslið frá upphafi? „Eg er ekkert viss um það. Þótt okkur hafi gengið vel í síðustu tveimur leikjum finnst mér strákamir aldrei hafa þá varði Siggi Dags. vítaspyrnu rétt fyrir leikslok náð að sýna sitt besta samtímis. Okkur vantar svo oft herslumuninn. Við höfum verið óheppnir með meiðsli en Guðjón hefur náð upp góðri stemmningu. Varnarleikurinn hefur verið vel út- færður en sóknarlega eru við ekki nógu sterkir ennþá. Fjölmargir leikmenn hafa haldið í atvinnumennsku og það ætti að skila sér í betri leikmönnum og öflugra landsliði. Reyndar hef ég ekki trú á því að menn bæti sig mikið ef þeir fá eingöngu að spila með sínum vara- liðum. Það er bara eins og að spila með 1. flokki á íslandi. Alvaran verður aldrei mikil.“ -- Hvað finnst þér um það að Guðni Bergsson, landsliðsfyrirliði, skuli ekki hafa verið valinn í sumar? „Ég þekki málavöxtu ekki nægilega vel til að geta tjáð mig um það. Mér finnst Guðni alltaf hafa skilað sínu með land- sliðinu og þykir miður að hann skuli ekki hafa verið valinn, hvort sem meiðslum er um að kenna eða því að Guðjón telur sig ekki hafa not fyrir hann. Ég hef alltaf verið þeirrar skoðu- nar að það eigi að tefla fram sterkasta landsliðinu hverju sinni og gildir þá einu hvort menn eru 18 eða 38 ára. Arnór virtist hafa misst sæti sitt fyrir aldurssakir og ég ekki hlynntur slíku en það er aðeins mín skoðun. Það verða alltaf skiptar skoðanir um það hvemig eigi að „kveðja“ leikmenn sem hafa þjónað liðinu lengi. Hvort kveðjuleikur er við hæfi skal ég ekki segja um enda veltur það á landsliðsþjálfaranum hver- ju sinni.“ o v -- Hver er þín stærsta stund sem áhorfandi? „Til dæmis þegar Valur jafnaði undir lokin í fyrri aukaleik um fslandsmeist- aratitilinn í knattspyrnu árið 1966 á móti Keflavík. Valur vann seinni leikinn 2:1 og þá varði Siggi Dags. vítaspymu rétt fyrir leikslok. Ég missti af þeim fræga bikarúrslitaleik þegar Valur lagði KA eftir að hafa jafnað þegar 7 sekúndur vom eftir af ven- julegum leiktíma. En það var stór stund þegar Valur varð íslandsmeistari 1987 að Hlíðarenda og fékk bikarinnar afhentan þar. Það var svo ánægjulegt að upplifa þessa miklu stemmningu á eigin heimavelli.“ -- Þú virðist enn jafn léttur og þegar þú varst upp á þitt besta í boltanum. Hvað gerirðu til að halda þér í formi? „Ég fer í sund í Garðabæjarlauginni á öllum virkum dögum enda vinn ég þar skammt frá. Síðan spila ég badminton tvisvar í viku. Annars hef ég aldrei átt við það vandamál að glíma að fitna og ég get ekki séð að það muni angra mig í framtíðinni." Valsblaðið 50 ára 29

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.