Valsblaðið - 01.05.1998, Qupperneq 35

Valsblaðið - 01.05.1998, Qupperneq 35
 Skallagrímsmenn á jólahlaðborði nú í desember. Bjarni, Ingi og Villi bíða eftir næsta leik við Akureyringana. verið yngdur lítillega upp með þeim Val Valssyni, Hilmari Sighvatssyni, Magna Blöndal Péturssyni og Brynjari Níelssyni. Ekki hefur veitt af vegna þess að mjög hefur færst í vöxt að bakverkir og aðrir kvillar hafa hrjáð frumkvöðlana eftir því sem árin hafa færst yfir. Það breytir samt ekki því að menn hafa haldið hópinn og mæta gal- vaskir til þeirra fagnaða sem boðað er til á vegum Skallagríms, t.d. árlegs jólahlaðborðs - sem jafnan er haldið í desember. í upphafi settu bæjarkeppnir vió Akureyringa mikinn svip á starf félagsins. Við fórum norður í keppnis- ferðir og þeir endurguldu með því að heimsækja okkur á heimavöllinn við Túngötu. I liði Akureyringa voru flestir leikmanna talsvert eldri en við, þeir Bílaleigubræður Skúli, Vilhelm og Eyjólfur, Gísli Jónsson, Jón heitinn Stefánsson, Kári Árnason, Valsteinn, Þormóður og fleiri góðir menn. Þrátt fyrir háan aldur tókst þeim að sigra í öllum þessum keppnum þrátt fyrir stjör- num prýtt lið Valsara í Skallagrími. Því er eðlilegt að þessar keppnir hafi lagst af. Auk þess höfum við stöðugt skynjað það betur og betur að utanaðkomandi atbeini er óþarfur þegar félagar í Skallagrími hittast. Fyrir nokkrum árum var tekið upp á þeirri nýbreytni að velja mann ársins. Sá atburður veldur ávallt mikilli spennu og er af mörgum talinn árlegur hápunk- tur í starfi félagsins. Veittur er farand- bikar og hafa þessir hlotið hann: Helgi Benediktsson, Vilhjálmur Kjartansson, Úlfar Másson, Hörður Hilmarsson, Grímur Sæmundsen og nú síðast í desember 1998 Guðmundur Þorbjörns- son, allir að sjálfsögðu fyrir frábæra frammistöðu. Helgi Magnússon Golfmót Vals 1998 Sigurvegar eru á myndinni ásamt Böðvari Bergssyni, sem fékk verðlaun fyrir að vera næstur holu. Á miðju s.l. sumri fór hið árlega golfmót Vals fram á golfvelli Oddfellowa í Urriðavatnsdölum. Þátttaka var mjög góð enda veðrið eins og best verður á kosið. Sigurvegari í ár varð hinn fomfrægi handboltakappi og fyrrum formaður handknattleiksdeildar félagsins, Brynjar Harðarson. Þó svo að hann hafi stundað golf skemur en margur annar var hann vel af sigrinum kominn. í öðru sæti varð Hilmar Sighvatsson og í því þriðja Friðjón Friðjónsson. Að venju lauk mótinu með verðlaunaafhendingu og síðan mikilli og veglegri garðveislu á óðali Gunnars bónda Kristjánssonar í Elliðaárdal. Auk Gunnars höfðu þeir Garðar Kjartansson og Halldór Einarsson veg og vanda að undirbúningi og framkvæmd mótsins, sem tókst í alla staði með ágætum. Valsblaðið 50 ára 35

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.