Valsblaðið - 01.05.2006, Qupperneq 61
Ungir Valsaran
Þorbergur Ingvi Kristjánsson leikur hörfubolta með 11. flokki hjá Ifal
Þorbergur er 15 ára gamall og hefur æft
körfubolta hjá Val í rúmlega eitt ár. Hann
æfði með Ármanni/Þrótti í tvö ár og var
mjög áhugasamur en fannst félagar sínir
ekki nægilega áhugasamir að æfa. Hann
þekkti Atla Barðason í 11. flokki Vals
og ákvað að skipta um félag sem hann
telur að hafi meiri metnað í körfubolta.
Frænka hans Rósa Júlía Steinþórsdóttir
lék knattspyrnu með Val og landsliðinu.
- Hvaða hvatningu og stuðning
hefur þú fengið frá foreldrum
þínum í sambandi við körfu-
boltann?
Það er mikilvægt að fá
stuðning við það sem
maður er að gera, hvað
sem það er, ég fæ nægan
stuðning frá foreldrum
mínum.
- Hvernig gengur?
í fyrra gekk okkur
ekki nógu vel, við end-
uðum í C-riðli í 10. flokki
og rétt héldum okkur í B
riðli í 9. flokki með sigri á
KR á íslandsmótinu. Svo
til að enda tímabilið
fórum við til
Gautaborgar í Svíþjóð og það var mjög
gaman. En nú í vetur hefur okkur öllum
farið mikið fram og við fengum líka
tvo nýja leikmenn, Ingólf og Togga, og
komumst strax í A-riðil bæði í 10. og 11.
flokki í október.
- Skemmtileg atvik úr boltanum.
Innan vallar myndi ég segja í hvert
sinn sem maður vinnur leik með einni
körfu, þá finn ég fyrir miklum létti en
utan vallar er það tvímælalaust ferðin til
Gautaborgar í maí 2006.
- Fyrirmyndir í körfuboltanum?
Uppáhaldsleikmaður minn hér-
lendis er Frikki í Njarðvík en
ég er ekki viss með erlend-
is, ég fylgist ekki mikið
með NBA en ég las grein
í Blaðinu um Chris Paul
sem var valinn nýliði árs-
ins en hann er að koma
Homets liðinu aftur á kort-
ið, þannig leikmönnum er
ég hrifnastur af, sem geta
rifið liðið sitt upp.
- Hvað þarf til að ná langt
körfubolta eða íþróttum
almennt?
Mér finnst aðalmálið
vera að taka vel á
því á æfing-
um og vera
1 0 0
og hlusta á þjálfarann, ekki góna út í loft-
ið á meðan hann talar. Ég þyrfti mest af
öllu að bæta sjálfstraust og skotnýtingu.
- Hvers vegna körfubolti?
Ég hef æft íþróttir alla mína ævi. Ég
byrjaði í fimleikum frá fjögurra ára aldri
og þangað til ég varð níu ára, þá tók fót-
boltinn við í nokkur ár og síðan handbolti
í eitt ár en svo fékk ég allt í einu dellu
fyrir körfubolta. Ég skil ekki af hverju
ég byrjaði ekki fyrr því þetta er lang-
skemmtilegasta íþróttin finnst mér og
hún spilar stórt hlutverk í mínu lífi.
- Hverjir eru þínir framtíðardraum-
ar í körfubolta og lífinu almennt?
Komast í unglingalandsliðið og meist-
araflokk en ég er ekki alveg viss hvað ég
vil verða þegar ég verð eldri. Allavega
komast inn í Versló, það er víst.
- Er einhver þekktur íþróttamaður í
fjölskyldu þinni?
Enginn í fjölskyldunni hefur spilað
körfubolta, ekki nema þá einn frændi
minn sem var í meistaraflokki liðsins í
Vík í Mýrdal, Drangur held ég að liðið
heiti.
- Hvernig líst þér á nýju aðstöðuna
sem verður hjá Val í körfubolta?
Ég hlakka mjög mikið til að byrja að
æfa í nýja húsinu en mér finnst að Valur
ætti að leggja meiri áherslu á alla flokka,
kvenna og karla. Ég hef til dæmis aldrei
keppt í búningi sem passar á mig, þeir
eru allir of stórir og lrka hálfgamlir. Mig
langar í nýja búninga með nýja húsnæð-
inu og ég held ég tali fyrir hönd flestra í
liðinu mínu.
- Hver stofnaði Val og hvenær?
Valur var stofnaður af sex strákum 11.
maí 1911 og Friðrik Friðriksson, stofn-
andi KFUM og KFUK tók víst einhvern
þátt í þessu öllu saman. Leit.is getur
bjargað manni.
- Áttu þér lífsmottó eða lífsspeki í
einni setningu?
„If you aint first, you’re last.“ (Will
Ferrel)
Valsblaðið 2006
61