Búnaðarrit - 01.01.1944, Page 121
BÚNAÐARRIT
53
bandssvæði Búnaðarsambands Suðurlands. Tilgangur
ferðarinnar var að heimsækja þær sveitir, þar sem
ekki höfðu áður verið stofnuð fóðurbirgðafélög, til
að vekja áhuga fyrir málefninu og reyna að stofna
félög, þar sem liægt væri.
Sunnudaginn 6. sept. mættum við á fundi hjá
sljórn Búnaðarsambandsins á Selfossi. Þar var
málið undirbúið og ákveðnir þeir staðir, þar sem
við skyldum mæta og halda fundi á. Samdi stjórn
sambandsins þar bréf, sem var fjölritað og sent til
formanna búnaðarfélaganna í viðkomandi sveitum,
með um þriggja vikna fyrirvara.
7. fundur. — Þann 8. október kl. 5 e. h. mættum
við á fyrsta fundinum í samkomuhúsinu í Hvera-
gerði í Ölfusi. Á þeim fundi mættu 18 manns.
Nokkrar umræður urðu um málið, bæði með og
móti. Ekki var samþykkt að stofna þar fóðurbirgða-
félag að þessu sinni, en samþykkt áskorun til hrepps-
nefndarinnar um að halda málinu vakandi og taka
það fyrir síðar á fundi, þegar fleiri búfjáreigendur
væru mættir, en á fundinum var lítill hluti þeirra
mættur.
2. fundur. — Föstudaginn 9. okt. kl. 3 e. h. mætt-
um við að Úlfljótsvatni í Grafningshreppi. Þar voru
fyrir fjórir menn, sem höfðu verið þar á manntals-
þingi fyrr um daginn. Enginn var þar mættur úr
sljórn búnaðarfélagsins. Ekki varð neitt úr fundi, en
við ræddum málið við þessa menn, og vantalað um,
að við kæinum á fund þangað síðar, ef þess yrði ósk-
að og við hefðum kringumstæður til þess.
3. fundur. — Laugardaginn 10. okt. mættum við á
fjölmennum fundi að Brautarholti á Skeiðum, þar
sem mættir voru 35 fundarmenn, eða flestir hændur
breppsins. Var málið þar rætt og voru flestir með-
mæltir stofnun fóðurbirgðafélags. Þar var samþykkt
að stol'na fóðurbirgðafélag, en þó með því skilyrði,