Búnaðarrit - 01.01.1944, Blaðsíða 144
76
BÚNAÐARRIT
frá nokkrum félögum. Sama má segja um fjölda kúa,
er félagsmenn eiga. Þeim fer fækkandi, en verða
fleiri 1941 en tölurnar nú segja lil um, þegar allar
skýrslur eru komnar.
Nylhæðin fer hækkandi og nær hámarki 1941.
Hefur meðalnyt kúnna þá hækkað um nærri 600
kg síðan félagsskapurinn byrjaði fyrst hér á landi
fyrir nær fjörutíu árum, og um 200 kg nú siðustu
árin.
Þessi hækkun stafar að nokkru leyti af bættri
meðferð, sem m. a. kemur fram i meira fóðri, en að
miklu leytí stafar hún af því, að yngri kýrnar taka
þeim eldri fram, og er þessi orsök til hækkunarinnar
áberandi í sumuin félögunum.
Annars hafa þessi tvö ár verið félagsskapnum
erfið. Fólki hefur fækkað, og þar sem eftirlits-
starfið hefur víðast hvar verið aukastarf, sem
áhugamenn hafa hætt við sig ásamt öðrum störfum,
er þeir áður höfðu og þurftu að rækja, hefur þeiin
orðið erfiðara og erfiðara að rækja starfið, eftir því
sem fólki á heimilum þeirra hefur fækkað, og
þvi orðið að taka á sig ineir af heimilisstörfun-
úm. Svo ramt kveður að þessu, að félög hafa í bili
orðið að hætta störfum af því að enginn eftir-
litsmaður hefur fengizt. Annað er það, sem valdiö
liefur erfiðleikum, en það er framkvæmd fitumæl-
inganna. Flest félögin, sem stofnuð eru eftir 1928,
liafa notað Höjbergsfitumæla, en efni til þeirra kem-
ur frá Danmörku eða Þýzkalandi, og er ófáanlegt
frá öðrum löndum. Með heimsstyrjöld þeirri, er nú
geysar, lokaðist allur innflutningur á efni þessu, og
hefur ekki tekizt að búa það til hér. Fitumælingar
hafa því víða fallið niður með öllu, og af þeiin 6919
fullmjólka kúm, sem skýrslur voru sendar um 1941,
var fituinæling aðeins gerð á mjólkinni úr 3273, eða
tæplega helmingnum. Hins vegar telja margir fé-