Búnaðarrit - 01.01.1944, Blaðsíða 168
100
BÚNAÐARRIT
Uppskera alls 1042.
Kornakrar .. 4,99 ha 9000 Ug bygg og hafrar + 190 hcstar
hálmur.
Grasfrœakrar 1,94— 800 k'g grasfræ + 50 hestar hálmur.
— nýsáö ... 1,81— 140 hestar hafrar og gras i vothey.
Tún ......... 17,28— 834 hcstar taða.
Kartöflur ... 0,96— 170 tunnur kartöflur.
Gulrófur .... 0,80— 140 tunnur gulrófur + 8 Ug gulrófufræ.
Hafragræn-
fóður ....... 0,54 — 40 hestar liafrar i votlicy.
Alls 28,32 ha
BæðL árin eru kornakrarnir af líkri stærð, en
nokkru munar á uppskeru og er hún fyrir neðan
meðallag stöðvarinnar frá 1928—1940, sem er rúmar
20 tn af ha. 1941 er meðaluppskera 15,2 tn af ha,
og eru það aðallega hafrarnir, er dregið hala úr
uppskerumagninu, því útsæðið frá kalda sumrinu
1940, var i raun og veru ekki nothæft þó þvi væri sáð.
Enda þótt útsæði væri haft tvöfalt við venjulegt
útsæðismagn, urðu akrarnir mjög gisnir og seint
þroskaðir, eða síðast í seiitember. Sprettutími fyrir
liafra voru 152 dagar. Byggakrarnir voru líka miklu
verri en í meðallagi, er sttifaði frá illa þroslcuðu út-
sæði frá sumrinu 1940, en það spíraði þó miklu bet-
ur en hafrarnir, og akrarnir urðu vel þéttir, en
vegna þess að ryð varð nokkuð á bygginu, varð korn-
ið minna og hygg ég, að stafað hafi líka af hvað út-
sæðið var smátt, sem það var upp af sprottið.
Sprettutími fyrir hyggið varð 118—125 dagar. Nýt-
ing uppskerunnar varð góð þrátt lyrir úrkomusamt
veðurlag í sept. og okt.
Kornræktin 1942 gekk öllu betur, þrátt fyrir mun
kaldara sumar, en þó var tíðin hér sunnanlands
liagstæð kornyrkju, og hafa bæði hygg og hafrar náð
góðum þroska. Hafrar eftir 140 daga og hygg eftir
118—120 daga sprettutíma. Ivornið nýttist vel og náð-
ist í hlöðu fyrir miðjan okt. í haust. Meðalupp-